30. nóvember 2020

Íbúðum til sölu fækkar verulega

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Eins og farið var yfir í skýrslu hagdeildar HMS um stöðu og þróun á húsnæðismarkaði 2020 hefur ekki verið jafn mikið líf á fasteignamarkaði síðan fyrir hrun en blikur eru á lofti í byggingariðnaðinum og þar hefur orðið töluverður samdráttur að undanförnu. Byggingariðnaðurinn hér á landi einkennist gjarnan af miklum sveiflum og hagsveiflur hafa mikil áhrif á veltu innan geirans.

Eins og farið var yfir í skýrslu hagdeildar HMS um stöðu og þróun á húsnæðismarkaði 2020 hefur ekki verið jafn mikið líf á fasteignamarkaði síðan fyrir hrun en blikur eru á lofti í byggingariðnaðinum og þar hefur orðið töluverður samdráttur að undanförnu. Byggingariðnaðurinn hér á landi einkennist gjarnan af miklum sveiflum og hagsveiflur hafa mikil áhrif á veltu innan geirans.

Allt frá árinu 2012 fram að vori 2019 var kröftugur vöxtur í íslenskum byggingariðnaði. Umsvif í geiranum náðu hæstu hæðum í upphafi árs 2019 en síðan fór að draga úr veltu fyrirtækja í byggingarstarfsemi. Miðað við síðustu tölur, sem ná yfir júlí-ágúst 2020, hafði árstíðaleiðrétt velta dregist saman um 15% frá byrjun árs 2019. Enn fremur dróst fjöldi starfandi í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð saman um 10% frá ágúst 2019 til ágúst 2020. Fjöldi starfandi fólks í byggingariðnaði er þó meiri en hann hefur verið stærstan hluta síðasta áratugar og það var ekki fyrr en í ágúst 2017 sem hann náði sömu hæðum og hann er í núna. Því eru umsvif á byggingamarkaði ennþá sögulega mikil. Talning Samtaka iðnaðarins á íbúðum í byggingu á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum í september 2020 leiddi þó í ljós að enn frekari samdráttur í íbúðauppbyggingu gæti verið framundan. Mestur samdráttur, samkvæmt talningunni, er á fyrstu byggingarstigum (þ.e. að fokheldu), eða 41% á milli ára. Viðlíka samdráttur í byggingu íbúðarhúsnæðis á umræddu svæði hefur ekki orðið í talningu síðan árin 2010-2011.

Á sama tíma er mikil eftirspurn eftir húsnæði og hefur fjöldi kaupsamninga í september ekki mælst jafn mikill í einum mánuði síðan árið 2007. Framboð af eignum hefur sömuleiðis dregist saman seinustu mánuði og skammtímavísir hagdeildar HMS, þar sem mælt er hversu margar íbúðir eru teknar úr sölu á hverjum tíma af vefnum fasteignir.is, bendir til þess að gengið hafi mikið á framboð eigna að undanförnu. Það gefur til kynna að fleiri íbúðir hafi verið seldar heldur en settar á sölu. Minnkandi framboð sést glögglega á myndinni hér að neðan, þar sem tekið er saman hversu mikil breyting hefur orðið á framboði frá því í maí á þessu ári. Mesta samdráttinn er að finna á höfuðborgarsvæðinu, Austurlandi og Vestfjörðum eða um 36-37% en minnsti samdrátturinn er á Norðurlandi-eystra eða 0,2%. Á meðan framboðið dregst saman þá er eftirspurnin í hæstu hæðum og því hefur húsnæðisverð hækkað töluvert síðan í maí eða að meðaltali um 5% og hefur meðalsölutími eigna einnig dregist verulega saman.

Mikið af nýjum eignum hafa komið inn á markaðinn bæði á þessu ári og í fyrra en þrátt fyrir það er enn til staðar uppsöfnuð þörf fyrir íbúðir sem hóf að myndast á árunum eftir hrun þegar mjög lítið var byggt. Því er hætta á því að uppsöfnuð þörf fyrir íbúðir aukist enn meira á næstu árum ef samdráttur í uppbyggingu verður viðvarandi. Vonir standa til að hlutdeildarlánin muni auka framboð af hagkvæmu húsnæði og þar af leiðandi vega upp á móti samdrættinum.  Eftirspurn eftir nýjum íbúðum hefur verið framar vonum og meðalsölutími nýrra eigna hefur dregist verulega saman undanfarna mánuði. Mikil eftirspurn hefur hvetjandi áhrif á byggingaverktaka að fjárfesta í aukinni uppbyggingu. Sama má segja um hlutdeildarlánin sem var komið á fót nú fyrir stuttu, þau eru sömuleiðis hvetjandi fyrir íbúðauppbyggingu og eru vonir uppi um að þau virki sveiflujafnandi á markaðinn þar sem gert er ráð fyrir að eftirspurn eftir slíkum íbúðum verði mikil. Nú þegar hefur fjöldi verktaka sótt um samstarf við HMS um uppbyggingu hagkvæmra íbúða sem uppfylla hlutdeildarlánaskilyrðin.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS