21. maí 2025
29. mars 2021
Íbúðum í byggingu fækkar samkvæmt talningu SI
Samkvæmt nýbirtum tölum Samtaka iðnaðarins (SI) eru nú um 3.523 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu sem er um 21% minna en fyrir ári síðan þegar 4.452 íbúðir voru í byggingu. Mestu munar um að íbúðum á seinni byggingarstigum hefur fækkað um 24% á meðan íbúðum í byggingu að fokheldu hefur fækkað um 15% frá því fyrir ári síðan.
Samkvæmt nýbirtum tölum Samtaka iðnaðarins (SI) eru nú um 3.523 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu sem er um 21% minna en fyrir ári síðan þegar 4.452 íbúðir voru í byggingu. Mestu munar um að íbúðum á seinni byggingarstigum hefur fækkað um 24% á meðan íbúðum í byggingu að fokheldu hefur fækkað um 15% frá því fyrir ári síðan.
Fækkun á seinni byggingarstigum var að einhverju leyti viðbúin þar sem fjöldi íbúða í byggingu á fyrri byggingarstigum hafði farið fækkandi frá september 2018 að september 2020. Samdrátturinn hefur þó greinilega verið meiri en gert var ráð fyrir og því SI dregið hefur niður spá sína um fjölda fullkláraðra íbúða. Spáin nú gerir ráð fyrir 6% færri íbúðum næstu tvö ár eða 2.135 íbúðum á þessu ári og 1.790 á því næsta á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess. Hinsvegar eru jákvæðu fréttirnar þær að fjöldi íbúða í byggingu á fyrri byggingarstigum hefur aukist um nær 10% frá síðustu talningu í september sem er til marks um viðsnúning á byggingarmarkaði sem mun skila sér í auknum fjölda íbúða á seinni byggingarstigum á næstu misserum.
Annað sem vekur athygli í talningu SI er hve lágt hlutfall íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu eru sérbýli eða um 8% en árið 2010 var hlutfallið tæplega 30%. Það kemur í kjölfarið á því að töluverður skortur virðist vera á sérbýli um þessar mundir þar sem landsmenn eru í auknum mæli að stækka við sig og mikil eftirspurn er eftir sérbýlum.
Ýmsum úrræðum hefur verið komið á fót sem virka hvetjandi á byggingarmarkaðinn. Þessi úrræði eru að mestu veitt í gegnum HMS og má þar nefna stofnframlög til uppbyggingar á almennum leiguíbúðum, hlutdeildarlán sem veitt eru til fyrstu kaupenda og jafnframt var nýlega farið að veita lögaðilalán til óhagnaðardrifinna leigufélaga yfir byggingartíma íbúða sem auðveldar fjármögnun nýrra byggingarverkefna. Ítarlega var fjallað um þessi úrræði og hvernig þau hafa hvatt til aukinnar íbúðauppbyggingar á landsbyggðinni í nýlegri skýrslu HMS. Þessi úrræði, ásamt mikilli eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði um þessar mundir, gætu leitt til þess að umsvif á byggingarmarkaði eigi eftir að aukast aftur á komandi misserum.