8. apríl 2026
9. apríl 2026
Íbúðauppbygging í fyrra var umfram nýja þörf vegna lítillar fólksfjölgunar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Fólksfjölgun var í takt við lágspár sveitarfélaga árið 2025 og íbúðaþörf því minni en sveitarfélög gerðu ráð fyrir samkvæmt miðspá
- Uppbygging íbúðarhúsnæðis reyndist umfram nýja þörf á landsvísu og því tókst að lækka uppsafnaða íbúðaskuld frá fyrri árum
- Gróflega má áætla að íbúðaskuld höfuðborgarsvæðisins hafi minnkað um 500 íbúðir í fyrra
Íbúum landsins fjölgaði mun minna í fyrra en sveitarfélög landsins höfðu gert ráð fyrir í húsnæðisáætlunum sínum fyrir árið 2025. Ný íbúðaþörf varð því talsvert minni en sveitarfélögin höfðu áætlað út frá spám sínum um fólksfjölgun á árinu. Íbúðauppbygging var hins vegar kröftug í fyrra og að teknu tilliti til raunverulegrar fólksfjölgunar má því líta svo á að uppbygging íbúðarhúsnæðis hafi verið umfram nýja þörf á árinu 2025.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu HMS um árangur húsnæðisáætlana sveitarfélaganna fyrir árið 2025. Skýrsluna má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Húsnæðisáætlanir 2025
Samantekt og árangur
Verulega hægði á fólksfjölgun í fyrra
Í upphafi árs 2025 gerðu sveitarfélögin 58 sem skiluðu inn húsnæðisáætlun ráð fyrir að íbúum innan þeirra marka myndi fjölga um 5.200 til 11.600 á árinu. Samkvæmt gögnum Hagstofunnar um mannfjölda í lok hvers ársfjórðungs fjölgaði íbúum um 5.470 manns í fyrra og því var raunfjölgun nokkurn veginn í samræmi við lágspá sveitarfélaganna. Á undanförnum tveimur árum hefur fólksfjölgunin hins vegar verið meira í takt við miðspár sveitarfélaganna um fólksfjölgun.
Ætla má að íbúðaskuld á höfuðborgarsvæðinu hafi lækkað um 500 íbúðir
Rúmlega tvö þúsund nýjar íbúðir urðu fullbúnar á höfuðborgarsvæðinu í fyrra. Fólksfjölgun ársins 2025 skapaði þó ekki þörf fyrir nema á bilinu 1.380 til 1.540 nýjar íbúðir á árinu, miðað við forsendur sveitarfélaganna um heimilisstærð í nýjum íbúðum samkvæmt húsnæðisáætlunum. Uppbygging var því umfram nýja íbúðaþörf á höfuðborgarsvæðinu í fyrra.
Gróflega má áætla að gengið hafi verið á íbúðaskuld höfuðborgarsvæðisins um það sem nemur 500 íbúðum í fyrra. Uppbygging í Reykjavík og Hafnarfirði hafði þar hvað mest að segja, en þar var byggt talsvert umfram nýja raunverulega íbúðaþörf á árinu. Uppsöfnuð íbúðaþörf er hins vegar mest í Reykjavík, þar sem uppbygging undanfarinna ára hefur ekki náð að mæta nýrri þörf vegna fólksfjölgunar.
Sé litið til nágrennis höfuðborgarsvæðisins var uppbygging jafnframt umfram nýja þörf á árinu 2025 að teknu tilliti til fólksfjölgunar, en þar var uppbygging jafnframt í samræmi við nýja þörf á árinu 2024. Annars staðar á landsbyggðinni gekk misvel að mæta nýrri íbúðaþörf í fyrra. Óuppfyllt íbúðaþörf var til að mynda langmest á Akureyri og Ísafirði þar sem ný íbúðaþörf reyndist meiri en áætlað hafði verið vegna mikillar fólksfjölgunar. Í öðrum sveitarfélögum, svo sem í Norðurþingi og Fjarðabyggð, átti sér stað íbúðauppbygging á sama tíma og íbúum fækkaði.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




