5. nóvember 2026

Íbúðauppbygging á Austurlandi heldur í við fólksfjölgun

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Að meðaltali 69 íbúðir urðu fullbúnar á Austurlandi undanfarin þrjú ár á sama tíma og áætluð þörf miðað við fólksfjölgun var um 70 íbúðir á ári 
  • Í september voru 84 íbúðir í byggingu á Austurlandi, 17 færri en ári áður
  • Landeigendur geta bókað viðtal við sérfræðinga HMS á Egilsstöðum til að fara yfir áætluð eignamörk jarða sinna

Íbúðauppbygging á Austurlandi hélt í við fólksfjölgun á árunum 2023–2025 og útlit er fyrir að svo verði einnig í ár. Það sem af er ári bendir þróun mannfjöldans til þess að fólksfjölgun verði nálægt lágspá sveitarfélaganna. Gangi það eftir er líklegt að fjöldi fullbúinna íbúða á árinu verði í takt við þörf. Þetta kom fram á vel sóttum fundi sem HMS og Tryggð byggð héldu í samstarfi við Austurbrú á Reyðarfirði þriðjudaginn 3. nóvember.

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, fluttu hvor sitt erindi um stöðuna í sveitarfélögunum. Jóna Árný fjallaði um íbúðauppbyggingu í nokkrum byggðakjörnum Fjarðabyggðar og kynnti nýjar aðferðir við framleiðslu húsa á svæðinu. Dagmar Ýr fór yfir stöðu framkvæmda í Múlaþingi og húsnæðisáætlun sveitarfélagsins, þar sem áhersla er lögð á minni og meðalstórar íbúðir.

Á fundinum kynnti Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri hjá HMS, einnig þróun mannvirkjaskrár og Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats hjá HMS, fór yfir það helsta sem er á döfinni í skipulagsmálum.

Íbúð­um í bygg­ingu fækk­ar þrátt fyr­ir horf­ur á auk­inni þörf

Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS, fjallaði um þróun íbúðamarkaðarins á Austurlandi. Fólksfjölgun í landshlutanum hefur einkum verið í Múlaþingi og Fjarðabyggð. Frá árinu 2015 hefur íbúum Múlaþings fjölgað um rúmlega 600 og íbúum Fjarðabyggðar um tæplega 350.

Alls urðu 208 íbúðir fullbúnar á Austurlandi á árunum 2023–2025, eða 69 á ári að meðaltali. Horft lengra fram í tímann gerir miðspá í húsnæðisáætlunum sveitarfélaganna ráð fyrir að á Austurlandi þurfi að meðaltali 94 nýjar íbúðir á ári á tímabilinu 2026–2035. Gangi miðspáin eftir þyrfti því að byggja um 25 fleiri íbúðir á ári en að jafnaði á árunum 2023–2025. Þróunin það sem af er ári bendir þó til þess að fólksfjölgun á Austurlandi verði nær lágspá sveitarfélaganna á þessu ári. Miðað við þær horfur er útlit fyrir að íbúðauppbygging verði í takt við þörf í ár líkt og síðustu ár.

Íbúðum í byggingu hefur á sama tíma fækkað tvö ár í röð. Í september 2024 voru 114 íbúðir í byggingu á Austurlandi, 101 í september 2025 og 84 í september síðastliðnum. Það jafngildir 17 prósenta fækkun á einu ári.

Land­eig­end­ur geta bók­að við­tal á Eg­ils­stöð­um

Friðrik Örn Bjarnason, sérfræðingur í fasteignaskráningu hjá HMS, kynnti vinnu við að áætla eignamörk jarða á Austurlandi. Nýlega sendi HMS eigendum um 1.160 jarða á Norðaustur- og Austurlandi tilkynningu um að drög að eignamörkum væru aðgengileg í vefsjá landeigna. Við gerð draganna var meðal annars stuðst við landamerkjalýsingar, þinglýst skjöl og loftmyndir. Staðþekking landeigenda getur skipt máli, til dæmis þegar örnefni í eldri landamerkjalýsingu er eina vísbendingin um hvar mörk liggja.

Teymi frá HMS verður á Egilsstöðum 8. og 9. nóvember og geta landeigendur bókað tíma til að fara yfir drögin með sérfræðingum stofnunarinnar. Fyrirspurnir um viðtalstíma má senda á jardir@hms.is en einnig er hægt að koma athugasemdum á framfæri í gegnum island.is. Landeigendur hafa sex vikur frá birtingu draganna til að koma athugasemdum á framfæri.

Næstu fund­ir á Ak­ur­eyri og Akra­nesi

Næsti fundur HMS og Tryggðrar byggðar verður á Akureyri mánudaginn 9. nóvember kl. 12:15 og sá næsti á Akranesi föstudaginn 13. nóvember kl. 11.45. Síðar í nóvember eru fyrirhugaðir fundir á Sauðárkróki, Selfossi, í Reykjanesbæ og Reykjavík. Fundirnir eru opnir öllum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS