21. maí 2025
3. desember 2022
Alþjóðlegur dagur fatlaðra 3.desember
Í tilefni af Alþjóðadegi fatlaðra 3. Desember hefur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun opnað upplýsinga- og fræðslusíðu um algilda hönnun og aðgengi á HMS.is.
Markmið síðunnar er að auðvelda fólki að finna upplýsingar um algilda hönnun og aðgengi þegar hanna á nýtt mannvirki, breyta þarf þegar byggðu mannvirki eða ef eldra mannvirki fær nýtt hlutverk og það þarf að mæta núgildandi kröfum byggingarreglugerðar.
Annar tilgangur með síðunni er að miðla efni frá samstarfshópi um upplýsingagjöf um algilda hönnun en yfirlýsing hópsins er svohljóðandi:
"Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ), Arkitektafélag Íslands (AÍ), Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA), Félag húsgagna- og innanhússarkitekta (FHI), Byggingafræðingafélag Íslands (BFÍ) og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) lýsa yfir vilja til samstarfs við að bæta upplýsingar og leiðbeiningar fyrir hönnuði og fagaðila í mannvirkjagerð og skipulagsmálum með áherslu á aðgengi fyrir fatlað fólk og algilda hönnun.
Samningsaðilar munu meðal annars vinna að gerð upplýsinga og leiðbeininga og halda fundi og vinnustofur með það fyrir augum að auka vitund um þarfir fatlaðs fólk í manngerðu rými og þróa hugvitssamar lausnir sem bæta aðgengi og auka lífsgæði“