1. desember 2021

Í dag er dagur reykskynjarans

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Neyðarlínan og Slysavarnafélagið Landsbjörg  ásamt fleiri aðilum hafa tekið höndum saman og þann 1. Desember verður ýtt úr vör árlegu forvarnarátaki í tilefni að degi reykskynjarans.

Reykskynjarar

Reykskynjari er eitt af mikilvægasta öryggistæki heimilisins sem hefur bjargað ófáum mannslífum. Um er að ræða ódýr öryggistæki sem eiga að vera á hverju heimili og mælst er til þess að reykskynjarar séu í öllum rýmum og herbergjum heimila. Skerandi vælið í þeim getur bjargað mannslífum. Marga eldsvoða er hægt að koma í veg fyrir með réttum og rétt staðsettum reykskynjurum. Mikilvægt er að skipta um rafhlöðu einu sinni á ári, en líftími reykskynjara er að hámarki 10 ár og nauðsynlegt að prófa hann fjórum sinnum á ári.

Reykskynjarar ættu að:

  • Vera staðsettir á öllum hæðum heimilisins
  • Vera til staðar í öllum svefnherbergjum heimilisins
  • Vera alls staðar þar sem raftæki eru
  • Vera prófaðir reglulega, helst mánaðarlega (bíííb)
  • Hafa rafhlöður í lagi
  • Vera yngri en tíu ára 

Sjá nánar á www.vertueldklar.is og á Youtube síða brunavarnarátaksins Vertu eldklár:https://www.youtube.com/channel/UC95zi3AdmM1l3OqzQIec5rQ

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS