8. júlí 2025
26. maí 2021
Hvernig metum við losun mannvirkjageirans á Íslandi?
Opin málstofa 1. júní kl. 13-14 á Teams
Innan samstarfsverkefnisins Byggjum grænni framtíð starfar hópur sem hefur það hlutverk að meta losun mannvirkjageirans á Íslandi. Er þetta í fyrsta sinn sem slík vinna fer fram hér á landi.
Í hópnum sitja:
- Sigríður Ósk Bjarnadóttir (hópstjóri), aðjúnkt við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ og byggingarverkfræðingur hjá VSÓ,
- Björn Marteinsson, fyrrv. dósent við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ og sérfræðingur hjá RB,
- Ólafur H. Wallevik, prófessor við Iðn- og tæknifræðideild HR og forstöðumaður RB,
- Jukka Heinonen, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ og
- Sigurður L. Thorlacius, umhverfisverkfræðingur hjá Eflu.
Þriðjudaginn 1. júní kl. 13-14 verður haldin opin málstofa á Teams, þar sem Sigríður, Björn og Jukka munu kynna störf hópsins, gagnaöflun hans og aðferðafræðina við matið á losuninni. Í framhaldinu gefst fundargestum tækifæri til að koma með spurningar og ábendingar til hópsins í sérstökum umræðutíma.
Dagskrá:13:00-13:20: Sigríður Ósk Bjarnadóttir, Björn Marteinsson og Jukka Heinonen kynna störf hópsins við mat á losun mannvirkjageirans á Íslandi.13:20-14:00: Umræður.
Málstofan er öllum opin.
Hlekkur á viðburðinn er hér.
Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð en það á meðal annars rætur sínar að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Viðfangsefnið felst í að afla upplýsinga um losun mannvirkjagerðar á viðmiðunarári, setja markmið um að minnka þá losun til 2030 og skilgreina aðgerðir svo það takist. Stefnt er að því að niðurstöðurnar verði bitar í Vegvísi að vistvænum mannvirkjum 2030, sem gefinn verður út fyrir lok júní 2021. Nánari upplýsingar má finna á byggjumgraenniframtid.is.