29. janúar 2025

Hver á Ísland? Eignarhald og afmörkun jarða

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS boðar til fundar miðvikudaginn 5. febrúar klukkan 11:00 í húsnæði HMS í Borgartúni 21. Fundinum verður streymt hjá HMS á Akureyri, Hafnarstræti 107 og eru allir velkomnir. Þá verður fundinum einnig streymt í gegnum hms.is/streymi.

Undanfarin ár hefur verið mikil umræða um eignarhald lands á Íslandi og ljóst að skráning fasteigna eins og henni hefur verið háttað fram til þessa hefur ekki getað gefið skýr svör um stærðir eigna og afmörkun þeirra.

Frá því að HMS tók við málaflokki fasteignaskrár hefur stofnunin unnið markvisst að uppbyggingu landeignaskrár þannig að hún geti þjónað sem heildstætt upplýsingarkerfi um eignarhalds lands á Íslandi. Hluti af því verkefni felst í kortlagningu jarða á Íslandi með því að nýta opinber gögn til að áætla legu eignamarka og bera undir eigendur jarða. 

Tilefni fundarins er að kynna fyrir almenningi og stjórnvöldum hvar við stöndum í þessum efnum og hvaða leið verður farin til þess að ná betri yfirsýn á næstu misserum. 

Dagskrá

  • Eignarhald lands á Íslandi á að vera þekkt stærð
    Ávarp ráðherra
  • Eignarhald og afmörkun jarða
    Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs HMS
  • Af hverju landeignaskrá? 
    Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Mikilvægi kortlagningar jarða á Íslandi
    Erindi frá Bændasamtökum Íslands
  • Myndband sýnt

Fundarstjóri: Róbert Smári Gunnarsson

Verið velkomin.

Skráning fer fram hér:

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS