2. desember 2025

Húsnæðismarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu – staða og framtíðarsýn

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Þriðjudaginn 9. desember verður haldinn opinn fundur um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar á höfuðborgarsvæðinu. Fundurinn verður haldinn hjá HMS, Borgartúni 21 í Reykjavík, kl. 12 og er opinn öllum. Að fundinum standa HMS og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. 

Á fundinum verður farið yfir stöðu íbúðamarkaðarins og kynntar niðurstöður könnunar sem HMS lét framkvæma meðal almennings um búsetuóskir helstu forgangsatriði þeirra við val á húsnæði. 

Dagskrá 

  • Staðan í Reykjavík 
    Heiða Björk Hilmisdóttir, borgarstjóri 
  • Er íbúðauppbygging á höfuðborgarsvæðinu næg 
    Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri húsnæðissviðs hjá HMS 
  • Óskir og væntingar um framtíðarbúsetu 
    Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur hjá HMS 

Fundarstjóri verður Ásdís Ólafsdóttir, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins. 

 

Húsið opnar kl. 11:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. 

Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS