2. febrúar 2018

Húsnæðismarkaðurinn – Mánaðarskýrsla febrúar 2018

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Nýmánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs er nú komin út. Á meðal þess sem fjallað er um í skýrslunni að þessu sinni er eftirfarandi:

Nýmánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs er nú komin út. Á meðal þess sem fjallað er um í skýrslunni að þessu sinni er eftirfarandi:

  • Kynntar eru til sögunnar nýjar tölur um fjölda eigna sem skráðar eru til sölu. Þær benda til þess að nýskráningar eigna til sölu hafi staðið í sterku sambandi við verðþróun íbúða á höfuðborgarsvæðinu á nýliðnu ári.
  • Ásett verð íbúða hefur haldið áfram að hækka allra síðustu mánuði, en hægar en áður. Meðalsölutími hefur lengst síðan síðasta sumar, en aðeins lítillega.
  • 8 prósent allra fasteignaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í desember áttu sér stað yfir ásettu verði. Þetta hlutfall hefur ekki verið lægra í þrjú ár.
  • Íbúðaverð á Suðurnesjum hækkaði um 35% milli áranna 2016 og 2017, sem er næstum því fordæmalaus hækkun á einu ári. Verðið hækkaði einnig mjög mikið í Árborg, Hveragerði og Ölfusi.
  • Hlutfall fasteignaverðs og leiguverðs (e. price to rent ratio) hér á landi er nú komið yfir langtímameðaltal sitt. Hlutfallið hefur einnig hækkað í mörgum nágrannalöndum okkar, en óvíða jafn hratt og á Íslandi undanfarin tvö ár.
  • Það tekur hátt í 17 ár fyrir leigutekjur af 3ja herbergja íbúð í Kópavogi að borga upp kaupverð íbúðarinnar. Hins vegar tekur það ekki nema rúm 13 ár á Suðurnesjum.
  • Fimm sveitarfélög hafa nú birt húsnæðisáætlun. Þær stuðla að auknum stöðugleika og fyrirsjáanleika á húsnæðismarkaði.
  • Ítarleg umfjöllun um stöðu eignasafns Íbúðalánasjóðs er á sínum stað.Skýrsluna má lesa í heild sinni hér: Húsnæðismarkaðurinn – febrúar 2018.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS