8. maí 2025
16. ágúst 2024
Húsnæðisbætur voru endurreiknaðar 16. ágúst
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Í dag, þann 16. ágúst 2024, framkvæmdi HMS endurreikning vegna umsókna um húsnæðisbætur. Samkvæmt lögum um húsnæðisbætur ber HMS að framkvæma endurreikning húsnæðisbóta fjórum sinnum á ári. Umsækjendur munu á næstu dögum fá send bréf með niðurstöðum endurreiknings.
Ný tekjuáætlun er gerð á grundvelli fyrirliggjandi gagna, þar á meðal upplýsingum úr staðgreiðsluskrá Skattsins og aðrar þær forsendur sem hafa áhrif á bótarétt eru skoðaðar. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér niðurstöður endurreikningsins og er þeim bent á að hafa samband með tölvupósti í hms@hms.is hafi þeir athugasemdir eða spurningar varðandi hina nýju tekjuáætlun.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS