25. janúar 2020

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fundar með bæjarstjóra Akraness

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Fulltrúar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar munu eiga fund með Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra Akraness á mánudag til að ræða stöðuna sem upp er komin eftir að leigufélagið Heimavellir seldi 18 leiguíbúðir í bænum. Kaupandi íbúðanna hyggst ekki endurnýja leigusamninga við íbúanna þegar þeir renna út heldur selja þær.  

Líkt og fram hefur komið í fréttum sem og af hálfu bæjarstjóra Akraness er skortur á leiguhúsnæði í bæjarfélaginu. Eitt af því sem rætt verður á fundinum er hvort Bríet, opinbert leigufélag í eigu ríkisins, geti komið að því að fjölga leiguíbúðum á svæðinu en eitt af markmiðum með stofnun félagsins er að stuðla að virkum leigumarkaði á landsbyggðinni í samstarfi við sveitarfélög.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS