16. júlí 2020

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr fræðslusjóði brunamála

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu þeirra sem starfa að brunamálum á sviði brunavarna og slökkviliðsstarfa. Sjóðurinn greiðir styrki til rannsóknar- og þróunarverkefna, námskeiðsgjöld, ferða- og dvalarkostnað, laun á námstíma og styrki vegna námskeiða og endurmenntunar.

Fræðslusjóður brunamála hefur til umráða 4,0 millj. kr. og mun 60% til 90% verða ráðstafað til slökkviliða og til einstakra slökkviliðsmanna. Aðrir aðilar sem vinna að brunamálum eiga kost á 10% til 40% af ráðstöfunarfé sjóðsins.

Umsóknir merktar „Fræðslusjóður brunamála 2020“ skal senda til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða á netfangið oryggi@hms.is, fyrir 1. september 2020.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Jón Ingólfsson á netfangið: olafur.ingolfsson@hms.is

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS