29. ágúst 2022

Velta á fasteignamarkaði í júlí 2022

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í síðasta mánuði samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var  972 og var upphæð viðskiptanna um 64 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar júlí 2022 er borinn saman við júní 2022 fækkaði kaupsamningum um 23,6% og velta lækkaði um 33,5%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 24,0% á milli mánaða og velta lækkaði um 37,6%. 

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS