10. júlí 2025
27. september 2022
Opið fyrir umsóknir í Ask - mannvirkjarannsóknarsjóð
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Aski – mannvirkjarannsóknarsjóði fyrir annað styrkár sjóðsins, styrkárið 2022. Umsóknarform og upplýsingar eru á vefsíðu Asksins, hms.is/askur. Þar koma fram áhersluþættir ársins, starfsreglur sjóðsins ásamt kynningarmyndbandi um umsóknarferlið.