21. október 2022

Hrekkjavökubúningar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Hrekkjavaka verður sífellt vinsælli á Íslandi en þá klæða börn og fullorðnir sig upp í allskonar búninga og hræða líftóruna hvert úr öðru. Þessir búningar fást víða og eru margir hverjir afar óhuggulegir.

Áður en búningur er keyptur fyrir börn ættu foreldar að hafa í huga að búningar geta verið þeim hættulegir, þeir geta verið eldfimir og innihaldið eiturefni auk þess sem á þeim geta verið smáhlutir sem geta valdið hættu á köfnun hjá litlum börnum. Sumir búningar eru með löngum böndum sem geta valdið kyrkingarhættu. Búningar sem ætlaðir eru börnum verða að vera CE merktir. CE-merkið segir að varan sé lögleg á Evrópska efnahagssvæðinu og ætti að vera örugg.

HMS framkvæmdi nú á dögunum markaðsrannsókn á Stór-Reykjarvíkursvæðinu á grímubúningum fyrir börn. Þar kom í ljós að 30 grímubúningar fyrir börn voru án CE-merkinga og fengu þeir söluaðilar sem voru að selja þá búninga sölubann.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS