27. október 2021

Hrekkjavaka nálgast

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Hrekkjavaka verður sífellt vinsælli á Íslandi en þá klæða börn og fullorðnir sig upp í allskonar búninga og hræða líftóruna hvert úr öðru. Þessir búningar fást víða og eru margir hverjir afar óhuggulegir.

Áður en búningur er keyptur fyrir börn ættu foreldar að hafa í huga að búningar geta verið þeim hættulegir, þeir geta verið eldfimir og innihaldið eiturefni auk þess sem á þeim geta verið smáhlutir sem geta valdið hættu á köfnun hjá litlum börnum. Sumir búningar eru með löngum böndum sem geta valdið kyrkingarhættu. Búningar sem ætlaðir eru börnum verða að vera CE merktir. Merkið gefur til kynna að varan sé örugg fyrir börn.

Nokkur fjöldi tilkynninga um hættulega búninga berast á hverju ári í gegnum evrópskt tilkynningakerfi, „Safety Gate“. Vörur sem eru hættulegar ber að innkalla á Evrópska efnahagssvæðinu.

Hér fyrir neðan eru hlekkir í tilkynningar er varða búninga.

Um leið og við óskum landsmönnum öllum gleðilegrar hrekkjavöku viljum við hvetja forelda og forráðamenn barna að kynna sér þau efni og búnað sem getur fylgt hrekkjavökubúningum.

Allar „Safety Gate“ tilkynningar má nálgast á https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS