23. maí 2025
28. desember 2021
HMS vekur athygli á hættulegu snuði sem gæti verið til á Íslandi.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu snuði sem gæti verið til á Íslandi. Um er að ræða svart snuð frá framleiðandanum Elodie Details með mynd af apa framan á. Við prófanir kom í ljós að snuðið inniheldur BPA eða bispheneol A en efnið getur haft áhrif á innkirtlastarfsemi barna. Efnið fannst aðeins í svörtum snuðum með strikamerkið númer 7350041670179.

Stofnunin hefur ekki upplýsingar um að snuðið hafi verið til sölu á Íslandi en vel getur verið að þetta snuð hafi verið keypt af erlendum vefsíðum. Innköllinin var gerð í byrjun desember og nær til allra Evrópulanda. https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10004085
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur foreldra til að vera á varðbergi gagnvart barnavörum og sérstaklega snuðum og naghringjum. Foreldrar geta leitað að hættulegum barnavörum í Safety Gate kerfinu. Þar er leitarvél sem auðveldar notendum að leitina að hættulegum vörum. https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport