28. október 2024

HMS veitti hlutdeildarlán til kaupa á 61 íbúð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Töluverð umframeftirspurn var eftir hlutdeildarlánum í október, þar sem 61 umsókn var samþykkt af 145
  • Allir umsækjendur sem voru í fyrsta forgangsflokki og uppfylltu öll skilyrði lánsins fengu úthlutað lán og því þurfti ekki að draga umsækjendur af handahófi
  • Opnað verður á ný fyrir umsóknir um hlutdeildarlán þann 7. nóvember næstkomandi

HMS hefur lokið mati á umsóknum sem bárust um hlutdeildarlán í október og samþykkt umsókn til kaupa á 61 íbúð. Heildarfjárhæð lánanna nam 796,5 milljónum króna, en 800 milljónir króna voru til úthlutunar í mánuðinum.

Ekki kom til þess að draga þurfti úr umsóknum eins og útlit var fyrir um stund en töluverð umframeftirspurn var eftir lánunum. Eingöngu voru afgreiddar umsóknar þar sem staðfest kauptilboð lá fyrir, en þar af var 61 umsókn í fyrsta forgangsflokki. Fjárhæð hlutdeildarlána eftir landshlutum má sjá á töflu hér að neðan.

Alls bárust HMS 145 umsóknir um hlutdeildarlán á umsóknartímabilinu frá 4. október til og með 21. október.  Af þeim umsóknum sem bárust voru 112 talsins með samþykktu kauptilboði og 33 umsóknir voru án kauptilboðs. Heildarfjárhæð umsókna var um 1.870 milljónir króna og þar af voru umsóknir með samþykktu kauptilboði samtals um 1.447 milljónir króna.  

Í forgangi voru umsóknir þar sem staðfest kauptilboð lá fyrir, auk þess sem miðað var við að á hverju ári verði að minnsta kosti 20% veittra hlutdeildarlána veitt til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins. Umsækjendum sem voru utan fyrsta forgangsflokks og komust því ekki til umfjöllunar að þessu sinni verður boðið að flytja umsóknir sínar yfir á næsta tímabil eða sækja um að nýju.

Næsta um­sókn­ar­tíma­bil hefst 7. nóv­em­ber

Opnað verður aftur fyrir nýtt umsóknartímabil hlutdeildarlán á fimmtudaginn 7. nóvember og mun umsóknartímabilið standa til 18. nóvember. Til úthlutunar fyrir tímabilið verða 400 milljónir króna.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS