4. desember 2024
29. nóvember 2024
HMS veitti hlutdeildarlán til kaupa á 28 íbúðum í nóvember
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Töluverð umframeftirspurn var eftir hlutdeildarlánum í nóvember, þar sem 28 umsóknir voru samþykktar af 79 sem bárust
- Allir umsækjendur sem uppfylltu öll skilyrði lánsins fengu úthlutað láni
- Opnað verður á ný fyrir umsóknir um hlutdeildarlán þann 5. desember næstkomandi
HMS hefur lokið mati á umsóknum sem bárust um hlutdeildarlán í nóvember og samþykktar voru umsóknir til kaupa á 28 íbúðum. Heildarfjárhæð lánanna nam um 383 milljónum króna, en 400 milljónir króna voru til úthlutunar í mánuðinum. Langflestar umsóknir sem voru samþykktar voru til kaupa á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi og fjárhæðir hlutdeildarlána eftir svæðum má sjá í töflu hér að neðan.
Alls bárust HMS 79 umsóknir um hlutdeildarlán á umsóknartímabilinu frá 7. nóvember til og með 18. nóvember. Af þeim umsóknum sem bárust voru 52 talsins með samþykktu kauptilboði og 27 umsóknir voru án kauptilboðs. Heildarfjárhæð umsókna var um 1.051 milljón króna og þar af voru umsóknir með samþykktu kauptilboði samtals um 708 milljónir króna.
Í forgangi voru umsóknir þar sem staðfest kauptilboð lá fyrir, auk þess sem miðað var við að á hverju ári verði að minnsta kosti 20% veittra hlutdeildarlána veitt til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins. Umsækjendum sem voru utan fyrsta forgangsflokks og komust því ekki til umfjöllunar að þessu sinni verður boðið að flytja umsóknir sínar yfir á næsta tímabil eða sækja um að nýju.
Næsta umsóknartímabil hefst 5. desember
Opnað verður aftur fyrir nýtt umsóknartímabil hlutdeildarlán fimmtudaginn 5. desember nk. og mun umsóknartímabilið standa til kl. 12 þann 16. desember nk. Til úthlutunar fyrir tímabilið verða 400 milljónir króna.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS