31. mars 2025

HMS veitti 26 hlutdeildarlán í mars

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Umframeftirspurn var eftir lánum en veitt voru 26 lán af þeim 85 umsóknum sem bárust.
  • 42 umsóknir uppfylltu skilyrði úthlutunar og var andvirði þeirra umsókna 544 milljónir króna. Í fyrsta skipti kom til þess að draga þurfti úr umsóknum.
  • Opnað verður á ný fyrir umsóknir um hlutdeildarlán þann 3. apríl næstkomandi.

HMS hefur lokið mati á umsóknum sem bárust um hlutdeildarlán í mars og veitti lán til kaupa á 26 íbúðum að þessu sinni. Heildarfjárhæð lánanna nam um 343 milljónum króna. Meirihluti veittra lána voru til kaupa á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu og var það helst til íbúða í Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Fjöldi og fjárhæðir hlutdeildarlána má sjá í töflu hér að neðan.

Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og standa þau til boða fyrir fyrstu kaupendur og þau sem ekki hafa átt íbúð síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Í forgangi eru umsóknir þar sem staðfest kauptilboð liggur fyrir, auk þess sem miða skal við að á hverju ári verði að minnsta kosti 20% veittra hlutdeildarlána veitt til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins.

Tölu­verð um­fram­eft­ir­spurn eft­ir lán­um

Alls bárust HMS 85 umsóknir um hlutdeildarlán í mars að andvirði um 1.167 milljónum króna, en 350 milljónir króna eru til úthlutunar fyrir tímabilið. Að lokinni úrvinnslu var fjárhæð lána sem uppfylltu skilyrði um úthlutun að fjárhæð 544 milljónir króna.

Af þeim umsóknum sem bárust um hlutdeildarlán í mars voru 72 þeirra með samþykkt kauptilboð og 13 umsóknir án kauptilboðs. Heildarfjárhæð umsókna með samþykkt kauptilboð var um 973 milljónir króna.

For­gangsút­hlut­un til um­sókna á lands­byggð með sam­þykktu kauptil­boði

Í ljósi fjármagns sem var til úthlutunar í mars þurfti að draga í fyrsta sinn úr innsendum umsóknum. Dregið var í samræmi við forgangsreglur úthlutunar hlutdeildarlána. Voru því einungis umsóknir sem uppfylltu skilyrði lánveitingar og voru með samþykkt kauptilboð með í útdrættinum. Þær umsóknir sem voru vegna kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins voru í fyrsta forgangi svo um 20% fjármagns sem væri til úthlutunar færi til íbúða á þeim svæðum.

Umsækjendum sem voru með umsóknir sem uppfylltu skilyrði lánveitingar en voru ekki dregnir út að þessu sinni hefur verið boðið að færa umsókn sína yfir á næsta úthlutunartímabil.

Næsta um­sókn­ar­tíma­bil hefst 3. apr­íl

Opnað verður aftur fyrir nýtt umsóknartímabil hlutdeildarlána þriðjudaginn 3. apríl næstkomandi og mun umsóknartímabilið standa til klukkan 12:00 þann 14. apríl næstkomandi. Til úthlutunar fyrir tímabilið verða 357 milljónir króna.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS