16. apríl 2025
3. júlí 2020
HMS úthlutaði 3,6 milljörðum til hagkvæmra leiguíbúða
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Ríkisstjórnin jók fjárframlög til almenna íbúðakerfisins um 2,1 milljarð sem stuðning við lífskjarasamningana
Ríkisstjórnin jók fjárframlög til almenna íbúðakerfisins um 2,1 milljarð sem stuðning við lífskjarasamningana
- Stofnframlögin verða nýtt til byggingar og kaupa á 600 hagkvæmum leiguíbúðum
- Meirihluti þeirra 35 umsókna sem bárust um stofnframlög var samþykktur
- Úthlutunin felur í sér heildarfjárfestingu á fasteignamarkaði upp á rúma 20 milljarða
- Nú þegar hafa um 600 fjölskyldur flutt inn í íbúðir sem byggðar hafa verið með stuðningi ríkis og sveitarfélaga
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur úthlutað ríflega 3,6 milljörðum króna í stofnframlög til byggingar og kaupa á 600 hagkvæmum leiguíbúðum víðsvegar um landið, svokallaðra almennra íbúða. Leiguíbúðirnar verða í 15 sveitarfélögum en meginþorri þeirra verða á höfuðborgarsvæðinu. Fjármunirnir eru hugsaðir til að styðja við framboð ódýrra leiguíbúða fyrir almenning og verða nýttir til byggingar á 438 íbúðum og kaupa á 162 íbúðum.
Stofnframlögin renna til byggingaraðila í almenna íbúðakerfinu og er ætlunin að slá á þann mikla húsnæðisvanda sem lægri og millitekjuhópar hafa mátt stríða við undanfarin ár. Fólk sem leigir íbúð í kerfinu þarf ekki að verja jafn stórum hluta af ráðstöfunartekjum heimilisins til húsnæðis og það myndi í mörgum tilfellum gera á frjálsa leigumarkaðnum og býr við meira öryggi því ekki er hægt að segja upp leigunni nema að ýmsum skilyrðum uppfylltum.
Framlög til íbúða í 15 ólíkum sveitarfélögum í þessari úthlutunAlls fengu 15 sveitarfélög úthlutað stofnframlögum en flestar af íbúðunum 600 eru á höfuðborgarsvæðinu, eða 472. Þá eru átta íbúðir á Austurlandi, 14 á Norðurlandi eystra, 13 á Norðurlandi vestra 10 á Suðurlandi, 12 á Suðurnesjum, 4 á Vestfjörðum og 67 á Vesturlandi.
Sem stuðning við lífskjarasamningana ákvað ríkisstjórnin að auka framlögin til almenna íbúðakerfisins um 2,1 milljarð árlega á árunum 2020 til 2022 til þess að flýta fyrir uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði og stuðla að auknu húsnæðisöryggi leigjenda.
Heildarfjárfesting tæplega 20 milljarða króna
Ljóst er að stofnvirði þeirra verkefna sem samþykkt voru í þessari úthlutun fela í sér fjárfestingu á húsnæðismarkaði upp á tæplega 20 milljarða króna. Þar af fara tæpir 14 milljarðar í uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði og 6 milljarðar í kaup. Alls bárust HMS 35 umsóknir um samtals 5,6 milljarða króna og af þeim voru 31 umsóknir samþykktar, ýmist að fullu eða að hluta til. Sveitarfélög nutu forgangs við úthlutunina og hlutu alls um 1,2 milljarða króna.
Fjöldi íbúa þegar fluttur inn í leiguíbúðir í almenna kerfinuÁ síðustu fjórum árum hefur HMS úthlutað ríflega 15 milljörðum króna í stofnframlög til byggingar og kaupa á rúmlega 2.600 almennum íbúðum fyrir hönd ríkissjóðs. Nú þegar hafa um 600 fjölskyldur flutt inn í almennar íbúðir þar sem þær búa í öruggri langtímaleigu á viðráðanlegu verði.
Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS: „Þær 600 íbúðir sem verið var að úthluta til núna er gríðarlega mikilvæg viðbót við almenna íbúðakerfið. Sú mikla eftirspurn sem er eftir stofnframlögum sýnir svo ekki verður um villst að enn er mikil vöntun á hagkvæmum leiguíbúðum þar sem fjölskyldur geta búið sér til öruggt heimili til langs tíma. Það er því fagnaðarefni að stjórnvöld hafi ákveðið að auka framlög til almenna íbúðakerfisins á komandi árum, sérstaklega nú þegar atvinnuleysi hefur aukist í kjölfar COVID-19 og fyrirséð að þörfin eftir ódýru leiguhúsnæði muni aukast sömuleiðis.“
Nánar um úthlutunina:
Alls fengu 15 sveitarfélög, víðsvegar um landið, úthlutað stofnframlögum. Þau eru Akraneskaupstaður, Akureyrarbær, Garðabær, Grindavíkurbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Hveragerðisbær, Kópavogsbær, Norðurþing, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Seyðisfjarðarkaupstaður, Snæfellsbær, Strandabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Vesturbyggð.
Byggingaraðilarnir sem fá stofnframlög eru Akureyrarbær, Andrastaðir hses, Bjarg íbúðafélag hses, Brynja - Hússjóður ÖBÍ, Félagsbústaðir hf., Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga bs., Grunnstoð ehf, f.h. óstofnaðs félags Nauthólsvegur 87 hses, Húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðarkaupstaðar, Landssamtökin Þroskahjálp, Leigufélag aldraðra hses., Norðurþing f.h. óstofnaðs hses (Vík hses), Seltjarnarnesbær f.h. Óstofnaðrar hses., Seyðisfjarðarkaupstaður f.h. óstofnaðrar hses., Strandabyggð f.h. óstofnaðrar hses., Sveitarfélagið Skagafjörður, Sveitarfélagið Skagafjörður fyrir hönd óstofnaðrar hses., Vesturbyggð f.h. óstofnaðrar hses.
Frekari upplýsingar veitir Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS, í s: 440-6400
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS