23. maí 2025
30. september 2021
HMS tekur við verkefnum frá Neytendastofu
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) mun þann 1. október nk. taka við nokkrum verkefnum sem Neytendastofu hefur haft með höndum. Yfirfærslan er liður í að straumlínulaga starfsemi hins opinbera á sviði vöruöryggismála, opinberrar markaðsgæslu og mælifræði.

HMS sinnir nú þegar markaðseftirliti með m.a. rafföngum, byggingarvörum, visthönnun og orkumerkingum, en frá og með næstu mánaðamótum mun stofnunin sinna samræmingarhlutverki á sviði markaðseftirlits á Íslandi. Þá mun HMS frá sama tíma sinna kvörðunum og öðrum verkefnum á sviði mælifræði.
Markmiðið með þessum breytingum er aukin hagræðing í ríkisrekstri með samnýtingu ferla á sviði vöruöryggismála, ná fram samlegð í verkefnum og auka sérþekkingu og bolmagn HMS til að takast á við flókin verkefni á þessu sviði, en til stendur að styrkja enn frekar vöruöryggismál hér á landi en liður í því er að efla hlutverk einkarekinna skoðunarstofa í samræmi við stefnumótun stjórnvalda