10. febrúar 2026

HMS og Þingvangur undirrita viljayfirlýsingu um byggingu hlutdeildarlánaíbúða í Hafnarfirði

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Fyrsti samningur á milli stjórnvalda og byggingaraðila um uppbyggingu hagkvæmra íbúða eftir fyrsta húsnæðispakka lítur dagsins ljós
  • Verkefni með 390 íbúðum sem verið hefur í bið fer aftur af stað fyrir tilstuðlan hlutdeildarlána og sveigjanleika í skipulagsmálum
  • HMS og Þingvangur lýsa yfir vilja til þess að veita hlutdeildarlán á framkvæmdatíma

HMS undirritaði viljayfirlýsingu í dag við byggingarfyrirtækið Þingvang um að byggðar yrðu 390 íbúðir við Hjallahraun 2 A-G í Hafnarfirði og að um þriðjungur þeirra muni uppfylla skilyrði hlutdeildarlána. Í yfirlýsingunni lýsa bæði HMS og Þingvangur sömuleiðis yfir vilja til þess að semja um útgreiðslu hlutdeildarlána fyrr á framkvæmdartíma.

Að minnsta kosti 60 hlut­deild­ar­lána­í­búð­ir í fyrsta áfanga

Viljayfirlýsingin er í samræmi við fyrsta húsnæðispakka stjórnvalda sem kynntur var í nóvember 2025. Á meðal aðgerða í húsnæðispakkanum voru samningar á milli stjórnvalda og byggingaraðila um uppbyggingu hagkvæmra íbúða inn í hlutdeildarlánakerfið.

Samkvæmt yfirlýsingunni skuldbindur Þingvangur sig til að byggja 177 íbúðir í fyrsta áfanga verkefnisins, þar af 60 íbúðir sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána. Á móti muni HMS skuldbinda sig til að veita hlutdeildarlán til kaupa á þessum tilteknu íbúðum, að uppfylltum öðrum skilyrðum hlutdeildarlána.

Verk­efn­ið end­ur­hann­að til að falla að skil­yrð­um hlut­deild­ar­lána

Þingvangur hafði áður undirbúið uppbyggingu á íbúðum í Hjallahrauni, en hætti við verkefnið um mitt ár 2024 vegna hárra vaxta og óvissu um sölu. Nú hefur Þingvangur endurhannað fyrsta áfanga verkefnisins svo að 60 íbúðir hið minnsta passi inn í ramma hlutdeildarlána. Íbúðunum hefur því fjölgað og meðalstærð þeirra hefur minnkað frá fyrri hönnun.

Í yfirlýsingunni lýsa bæði HMS og Þingvangur yfir vilja til þess að semja um útgreiðslu hlutdeildarlána á framkvæmdatíma, að nánari skilyrðum uppfylltum. Enn sé unnið að útfærslu þessara skilyrða, en félags- og húsnæðismálaráðherra muni tilgreina þau í reglugerð.

Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs segir: „Þingvangur hefur beðið lengi eftir að geta hafið þessa uppbyggingu. Núna er það mögulegt þegar félags- og húsnæðismálaráðherra leggst á vogaskálarnar með okkur ásamt Hafnarfjarðarbæ, fjárfestum og Íslandsbanka.  Það er trú okkar allra sem koma sameiginlega að þessu verkefni að núna sé rétti tíminn til að framleiða íbúðir sem koma á markað þegar núverandi lager verður vonandi búinn og vextir hafa lækkað.

Vil ég sérstaklega þakka félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnari Þór Ingólfssyni, bæjarstjóra Hafnafjarðar, Valdimari Víðissyni og Íslandsbanka fyrir að leggja sitt af mörkum svo hægt sé að koma verkefninu af stað.“

Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnafjarðar segir: „Við fögnum þessari uppbyggingu. Við höfum lagt áherslu á það frá upphafi að hér verði fjölbreyttar íbúðir sem henta öllum í samfélaginu. Það er gleðilegt að sjá gott samstarf á milli byggingarverktakanna og ríkisstjórnarinnar í þessu verkefni.

Bæjarfélagið hefur átt í góðu samstarfi við Þingvang og sýnt sveigjanleika þegar kemur að skipulagsskilmálum. Ekki hefur verið slegið slöku við í íbúðauppbyggingu hér í Hafnarfjarðarbæ síðustu ár og við ætlum að axla þá ábyrgð áfram.“

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS