2. apríl 2024

HMS og sveitarfélög stefna að samræmdu verklagi í byggingarmálum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS, ásamt Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og Stafrænu Íslandi, undirritaði í dag viljayfirlýsingu um samræmt verklag í byggingarmálum.

Hægt er að nálgast viljayfirlýsinguna með því að smella á þennan hlekk, en í henni sammælast allir hlutaðeigandi um að vinna saman að því að samræma verklag þvert á sveitarfélög með einu viðmóti fyrir umsókn um byggingarleyfi og afgreiðslu þeirra í stað 64 í dag. Með verkefninu er einnig stefnt að því að auk samræmingu umsókna og afgreiðslu byggingarleyfa muni það flýta fyrir skráningu og auka gæði rauntímaupplýsinga um mannvirkjagerð.

Verkefnið mun stuðla að markmiðum um skilvirka stjórnsýslu ásamt því mun bætt umhverfi mannvirkjagerðar stuðla að auknum gæðum, öryggi, eftirliti og rekjanleika.

Verkefnið er eitt af 44 aðgerðum sem ætlað er að ná fram markmiðum húsnæðisstefnu stjórnvalda. Verkefnið samræmist jafnframt aðgerðaráætlun í málefnum sveitarfélaga er varða stafræna umbreytingu þar sem vinna skal að heildstæðri stefnumörkun um stafræna umbreytingu sveitarfélaga og samstarf þeirra við ríkið til að ná þeim markmiðum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS