10. júlí 2026

HMS minnir á rafmagnsöryggi á tjaldsvæðum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS minnir rekstraraðila tjaldsvæða og hjólhýsasvæða á mikilvægi öruggra raflagna og reglubundins eftirlits með rafbúnaði
  • Bilunarstraumsrofar, tenglar og annar rafbúnaður þurfa að vera í góðu ástandi og henta þeim aðstæðum sem þeir eru notaðir við
  • Rafbíla má aðeins hlaða úr tenglum sem eru sérstaklega ætlaðir til hleðslu rafbíla

Í upphafi ferðasumarsins vill HMS vekja athygli á mikilvægi ramagnöryggis á tjaldsvæðum, hjólhýsasvæðum og sambærilegum stöðum. Á slíkum svæðum geta aðstæður verið krefjandi fyrir raflagnir og rafbúnað vegna veðurs, beinnar snertingar við jörð, umferðar þungra farartækja og hættu á skemmdum af völdum tjaldhæla eða annarra jarðfestinga.

Mikilvægt er að rafbúnaður sé ætlaður til notkunar við þær aðstæður sem hann er notaður við og að uppsetning og frágangur sé samkvæmt gildandi kröfum. Jafnframt þarf að yfirfara reglulega ástand og virkni búnaðarins til að tryggja öryggi þeirra sem dvelja á svæðunum.

Sérstaklega þarf að huga að varbúnaði, þar á meðal bilunarstraumsrofum, sem geta misst virkni ef þeir eru ekki prófaðir reglulega eða verða fyrir erfiðum ytri áhrifum. Einnig er mikilvægt að ganga úr skugga um að tenglar, umlykjur og annar rafbúnaður séu óskemmdur og hafi fullnægjandi verndarstig. Gallaður eða ófullnægjandi búnaður getur skapað hættu á raflosti.

Hlað­ið raf­bíla ein­göngu með hleðslu­bún­aði sem sér­stak­lega er gerð­ur til slíks

Með fjölgun rafbíla vill HMS jafnframt minna á að ekki er öruggt að hlaða rafbíla úr almennum tenglum á tjaldsvæðum nema þeir séu sérstaklega hannaðir og ætlaðir til slíkrar notkunar. Nánari upplýsingar má finna í leiðbeiningum HMS um hleðslu rafbíla.

Leið­bein­ing­ar um raf­lagn­ir á tjald­svæð­um

HMS hefur gefið út verklýsingu VL 3.039 um raflagnir á tjaldsvæðum, hjólhýsasvæðum og sambærilegum stöðum. Þar er meðal annars fjallað um kröfur reglugerðar um raforkuvirki og staðlaraðarinnar ÍST HD 60364, auk þeirra öryggisatriða sem mikilvægt er að hafa í huga við hönnun, uppsetningu og rekstur raflagna á slíkum svæðum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS