22. október 2024

HMS metur brunavarnir í eldri timburhúsum – átaksverkefni til að auka öryggi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur sett af stað átaksverkefni með það að markmiði að bæta brunavarnir eldri timburhúsa um land allt. Sem hluti af þessu átaki hafa eigendur allra eldri timburhúsa fengið senda spurningakönnun þar sem þeir eru beðnir um að meta eigin brunavarnir. Markmið verkefnisins er að auka vitund um mikilvægi brunavarna og stuðla að öruggara samfélagi fyrir alla íbúa.

Með­vit­und eig­enda lyk­ill­inn að úr­bót­um

Spurningakönnunin var send í gegnum island.is. Verkefnið felur í sér sjálfsmat eigenda á brunavörnum húsa þeirra. Í könnuninni eru þeir beðnir um að svara 12 spurningum og leggja þannig mat á ýmsa þætti brunavarna, þar á meðal hvort reykskynjarar séu til staðar, slökkvitæki, flóttaleiðir, brunahólfun sem og aðra þætti hússins sem geta haft áhrif á brunavarnir.

Mik­il­vægi bruna­varna í eldri timb­ur­hús­um

Eldri timburhús eru öll hús sem eru byggð fyrir árið 1999, eru úr timbri eða blöndu af timbri og steypu. Þessi hús voru reist áður en nútímakröfur um brunavarnir komu til í byggingarreglugerð, það gerir húsin berskjaldaðri gagnvart eldsvoða. Í mörgum tilfellum er byggingarefnið ekki í samræmi við nútímakröfur um brunavarnir, og því er mikilvægt að eigendur geri sér grein fyrir þeirri hættu sem kann að vera til staðar og taki nauðsynleg skref til að bæta brunavarnir.

Hvatn­ing til þátt­töku

HMS hvetur alla eigendur timburhúsa, byggð fyrir 1999, til að taka þátt í könnuninni. Með þátttöku geta eigendur betur gert sér grein fyrir stöðu brunavarna í húsum sínum og hvar úrbóta er þörf. Könnunin er unnin í samstarfi við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) og er hluti af úrbótatillögum samráðsvettvangs um brunavarnir í húsnæði, stofnaður í kjölfar eldsvoðans á Bræðraborgarstíg.

Fræðsla um bruna­hættu og bruna­varn­ir í eldri timb­ur­hús­um

Samhliða spurningakönnuninni hefur verið hrundið af stað fræðsluátaki um hvernig efla megi brunavarnir eldri timburhúsa og draga úr brunahættu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og fræðsluefni með því að smella á þennan hlekk.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS