8. maí 2025
5. apríl 2022
HMS hlýtur viðurkenninguna Byggðagleraugun 2022
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi standa að veitingu verðlaunanna Byggðagleraugun
HMS hlaut á dögunum viðurkenninguna Byggðagleraugun 2022 fyrir árangursríka uppbyggingu starfsstöðvar stofnunarinnar á Sauðárkróki. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi (SSNV) standa að veitingu verðlaunanna og eru þau nú veitt í annað sinn. Stjórn HMS hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á að ekki bara viðhalda starfsemi á Norðvesturlandi heldur að efla hana og styrkja. Frá því HMS var stofnað hefur stöðugildum á Sauðárkróki fjölgað um meira en þriðjung og í dag eru tæplega 30 starfsmenn sem tilheyra starfstöðinni. Það felast mikil tækifæri í að reka opinbera þjónustu á landsbyggðinni, starfsumhverfið er frábært og lífsgæði starfsmanna eins og best verður á kosið.
Haft er eftir SSNV í tilkynningu:
"Starfsstöðin hefur mikla þýðingu fyrir samfélögin á Norðurlandi vestra og þykir fyrirmyndar dæmi um árangursríkan flutning verkefna á landsbyggðina. Starfsstöðin hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin misseri og fer fjölgandi með fjölgun verkefna. Svo stór vinnustaður hefur mikla þýðingu fyrir samfélagið."
„Eitt helsta baráttumál okkar á Norðurlandi vestra hefur verið fjölgun starfa í landshlutanum. Störfin er það sem mestu máli skiptir í að fjölga hér íbúum og efla samfélögin. Fjölgun opinberra starfa er einn liður í því. Það er afar ánægjulegt að finna skilning stjórnenda HMS á því hvaða tækifæri felast í því fyrir stofnanir að efla sínar starfsstöðvar á landsbyggðinni og það er þess vegna sem ákveðið var að veita HMS viðurkenninguna að þessu sinni” segir Ingibjörg Huld Þórðardóttir, formaður stjórnar SSNV.
Um Byggðagleraugun
Stjórn SSNV veitir ár hvert viðurkenninguna Byggðagleraugun til ráðuneytis eða stofnunar sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna í landshlutanum eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans. Er viðurkenningunni ætlað að hvetja forsvarsmenn stofnana til að horfa með “byggðagleraugunum” á verkefni sinna eininga og nýta þau tækifæri sem gefast til flutnings starfa/verkefna á landsbyggðina í samræmi við áherslur byggðaáætlunar.
Stjórn SSNV velur þann aðila sem viðurkenninguna hlýtur ár hvert og er viðurkenningin afhent á ársþingi samtakanna.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS