11. febrúar 2026
12. febrúar 2026
HMS hefur áætlað eignamörk á Vestfjörðum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Áætlun á legu allra þeirra 750 jarða sem til eru á Vestfjörðum er nú lokið
- Hægt er að nálgast áætlun eignamarka um allt land á heimasíðu HMS
- HMS hefur nú afmarkað um 62 prósent af flatarmáli Íslands
Allar jarðir á Vestfjörðum teljast nú að fullu áætlaðar. Alls hefur HMS áætlað legu 750 jarða í landshlutanum, en hægt er að nálgast áætlanirnar í landeignaskrá. HMS hefur birt áætlanirnar sínar í landeignaskrá.
Kortlagning fasteigna komin vel á veg
HMS hefur frumkvæði að kortlagningu fasteigna sem ekki hafa hnitsetta afmörkun í landeignaskrá og nýtir opinber gögn til að áætla legu eignamarka. Verkefnið er nú komið vel á veg, en áður höfðu eignamörk um 1.720 jarða á Norðurlandi og Norðausturlandi verið áætluð og birt í landeignaskrá.
Skjáskot af afmörkun landeigna á Vestfjörðum í landeignaskrá
Fyrir áramót sendi HMS eigendum þeirra jarða bréf þess efnis að drög að áætluðum eignamörkum væru komin í birtingu og að aðilar gætu kynnt sér drögin í vefsjá landeignaskrár. Aðilar höfðu sex vikur til að bregðast við og senda HMS athugasemdir um áætlaða legu einstakra eignamarka. Nú er búið að taka tillit til athugasemda eiganda og landamerki svæðisins teljast að fullu áætluð.
Norðausturland og Austfirðir næst á dagskrá
Frá því að HMS tók við málaflokki fasteignaskrár hefur stofnunin unnið markvisst að uppbyggingu landeignaskrár þannig að hún geti þjónað sem heildstætt upplýsingakerfi um eignarhalds lands á Íslandi. Í upphafi árs 2023 var um 29 prósent flatarmáls Íslands með afmörkun í landeignaskrá. Hlutfallið jókst í 39 prósent árið 2024 og árið 2025 í 54 prósent og nú með birtingu áætlunar á Vestfjörðum nær afmörkunin 62 prósent.
Næsta svæði sem tekið verður til yfirferðar er Norðausturland og Austfirðir. Gert er ráð fyrir að drög að áætluðum eignamörkum á því svæði verði kynnt landeigendum síðar á þessu ári. Síðan er áætlað að vinna að Vesturland, Reykjanes og Suðvesturland í framhaldi af því.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





