9. febrúar 2021

HMS framkvæmir virkniskoðanir á gæðastjórnunarkerfum hjá fagaðilum í mannvirkjagerð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

 

 

 

  • 4.500 gæðastjórnunarkerfi fagaðila í íslenskum byggingariðnaði eru skráð hjá HMS 
  • Skráning gæðastjórnunarkerfa hjá HMS er forsenda fyrir því að mega taka að sér byggingarleyfisskyld verk  

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur ráðist í viðamikið verkefni með virkniskoðunum gæðastjórnunarkerfa hjá eftirlitsskyldum fagaðilum í byggingariðnaði. Skráning upplýsinga um verk, úttektir, hæfni verkaðila og innra eftirlit er nauðsynleg leið til að tryggja gæði og öryggi mannvirkja. 

Kerfin sem notuð eru í byggingariðnaði þurfa ekki endilega að vera flókin í uppbyggingu og krefjast fyrst og fremst utan umhalds um gögn, svo sem staðfestingar á hæfni og endurmenntun, samskipti við tengda aðila, skrá yfir úttektir, verkskráningu, lýsingar á úttektum og á innra eftirliti.  

Flestir stærri verktakar, hönnuðir og verkfræðistofur hafa þegar innleitt og tekið í notkun viðameiri gæðastjórnunarkerfi sem mörg hver eru ISO 9001 vottuð af faggiltri vottunarstofu. Minni aðilar hafa flestir einfaldara kerfi sem eru skráð hjá HMS en einnig þarf að gæta þess að þau séu samþykkt til notkunar af HMS. Eitt af því sem virkniskoðun HMS mun leiða í ljós er hversu vel innra eftirliti er háttað og því fylgt eftir. 

 

Skoða þarf um 4.500 gæðastjórnunarkerfi hjá fagaðilum í byggingariðnaði hér á landiÞað eru aðeins fyrstu virkniskoðanirnar byggingarstjóra sem fram fara nú í byrjun árs en áætlað er að verkefnið muni taka nokkur ár, þar sem um 4.500 gæðastjórnunarkerfi fagaðila í íslenskum byggingariðnaði eru skráð hjá HMS. Tvær faggiltar skoðunarstofur, BSI á Íslandi og Frumherji hafa starfsleyfi HMS og munu þær framkvæma eftirlitið í samvinnu við starfsfólk sviðs Öryggis mannvirkja hjá HMS.

Kannað verður hvort gæðastjórnunarkerfi byggingarstjóra, hönnuða, hönnunarstjóra og iðnmeistara séu í virkri notkun og hvort þau séu í samræmi við settar reglur en forsenda fyrir því  að aðilar megi taka að sér byggingarleyfisskyld verk, er að þeir séu með gæðastjórnunarkerfi sín  skráð og samþykkt hjá HMS. Stefnt er að því á næstu árum að búið verði að kanna virkni gæðastjórnunarkerfa allra fagaðila sem viðurkenndir hafa verið af HMS.  

 

UndirbúningurUnnið hefur verið að undirbúningi verkefnisins frá því síðastliðið haust. Áður en hafist var handa þurfti að greina ýmis gögn en töluvert er til af verklagsreglum, skoðunarhandbókum og eyðublöðum sem kominn var tími til að endurskoða. Samráð var haft við helstu hagsmunaðila s.s. stærri verktaka og Samtök iðnaðarins um verkefnið. Þá var samráð haft við BSI á Íslandi og Frumherja um verkefnið. 

 

Gæðastjórnunarkerfi fagaðila þurfa ekki að vera flókinTil að minnka líkur á göllum í mannvirkjum þurfa að vera til staðar skýrar reglur til að tryggja gæði, öryggi og heilnæmi mannvirkja og að gerðar séu kröfur um hæfni og öguð vinnubrögð þeirra sem að mannvirkjagerðinni koma. Þá þarf að tryggja að markvisst og faglegt byggingareftirlit fari fram. Markmiðið er að eftirlit sé einfalt og ekki kostnaðarsamara en þörf krefur.  

 

Leiðbeiningar og kynningarefni fyrir fagaðilaSamhliða átakinu er gert ráð fyrir að kynningarefni fyrir fagaðila verði aðgengilegt á vef HMS.  

Einnig er gert ráð fyrir að Iðan fræðslusetur muni halda sérstök námskeið fyrir fagaðila um sama málefni. 

 

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS