21. október 2025
21. október 2025
HMS framkvæmir nýja tekjuáætlun í október
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS hefur framkvæmt endurreikning á öllum virkum umsóknum um húsnæðisbætur. Endurreikningurinn byggir á nýjustu tekju- og eignaupplýsingum frá Skattinum og er liður í reglubundnu eftirliti með húsnæðisbótum sem fer fram ársfjórðungslega.
Við endurreikning húsnæðisbóta er gerð ný tekjuáætlun á grundvelli fyrirliggjandi gagna, þar á meðal upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Skattsins og annarra forsenda sem hafa áhrif á bótarétt.
Umsækjendur munu á næstu dögum fá send bréf um nýja tekjuáætlun ef breyting hefur orðið bótafjárhæð við endurreikninginn.
HMS hvetur umsækjendur til að kynna sér niðurstöður nýrrar tekjuáætlunar sem verða sendar með bréfi á island.is á næstu dögum.
Ef einhverjar spurningar eða athugasemdir vakna vegna nýrrar tekjuáætlunar, er hægt að hafa samband með tölvupósti á hms@hms.is eða í síma 440-6400.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS