9. desember 2021

HMS eykur eftirlit hjá fagaðilum í mannvirkjagerð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Síðastliðið ár hefur HMS unnið að átaki í fræðslu og eftirliti með gæðastjórnunarkerfum fagaðila í mannvirkjagerð. Byggingarstjórar gegna miklu ábyrgðarhlutverki í mannvirkjagerð og var stefnan sett á að hefja átakið á þeim.

Eitt af þeim skilyrðum sem byggingarstjóri þarf að uppfylla til að fá starfsleyfi hjá HMS er að hafa virkt gæðastjórnunarkerfi. Í eftirliti með virkni gæðakerfa er m.a. verið að ganga úr skugga um að byggingarstjórar skilgreini þau byggingarleyfisskyldu verk sem þeir bera ábyrgð á, lögbundnar úttektir séu framkvæmdar og skrár séu varðveittar samkvæmt kröfum.

Átakið felst í því að senda byggingarstjórum tilkynningu um virkniskoðun þar sem óskað er eftir því að þeir leggi fram úttektarskýrslu um virkni gæðastjórnunarkerfis.

Fjöldi byggingarstjóra með starfsleyfi hjá HMS er um 1250 talsins, nú þegar hefur helmingur þeirra fengið bréf frá HMS. Af þeim sem hafa fengið bréf hafa rúmlega 50% staðist kröfu um virkni gæðastjórnunarkerfis. Þá hefur u.þ.b. 25% byggingarstjóra ekki staðist virkniskoðun og eru því ekki lengur með samþykkt gæðastjórnunarkerfi hjá HMS.

Stefnt er að því að allir starfandi byggingarstjórar verði búnir að fá tilkynningu um virkniskoðun á komandi ári. Í framhaldinu stendur síðan til að koma á sambærilegu eftirliti með hönnuðum og iðnmeisturum með skráð gæðastjórnunarkerfi hjá HMS.

Hér má sjá lista yfir byggingarstjóra með skráð starfsleyfi hjá HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS