8. maí 2025
25. október 2022
HMS auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Fræðslusjóði brunamála
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Markmið sjóðsins er að veita slökkviliðum, slökkviliðsmönnum, eldvarnareftirlitsmönnum og öðrum þeim sem starfa að brunamálum styrki til náms og verkefna á sviði brunamála í þeim tilgangi að byggja upp fagþekkingu á sviði brunamála og sérstakra áhættuþátta í umhverfi þeirra sem sækja um styrki. Sjóðurinn veitir styrki til rannsóknar og þróunarverkefna á sviði brunamála sbr. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 266/2001.
Fræðslusjóður brunamála hefur til umráða 4.000.000 kr. og mun 60-90% verða ráðstafað til slökkviliða og einstakra slökkviliðsmanna. Aðrir aðilar sem vinna að brunamálum eiga kost á 10-40% af ráðstöfunarfé sjóðsins. Sjóðurinn veitir ekki styrki til einkafyrirtækja.
Umsóknir í fræðslusjóð brunamála skulu fela í sér umfjöllun um hversu mikilvægt verkefnið er, hvernig gæðum er stýrt og hvernig útkomu verkefnisins verður komið á framfæri þannig að aukin þekking á sviði brunamála nýtist sem flestum af þeim sem að brunamálum vinna.
Við úthlutun styrkja skal stuðst við umsagnir frá úthlutunarnefnd í samræmi við verklagsreglu HMS.
Umsóknir merktar „Fræðslusjóður brunamála 2022“ skal senda til HMS á netfangið brunavarnasvid@hms.is, fyrir 15. nóvember næst komandi.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS