25. júní 2020

Hlutverk HMS í aðgerðaráætlun í loftslagsmálum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Loftslagsáhrif byggingariðnaðarins

Loftslagsáhrif byggingariðnaðarins

Þann 23. júní sl. kynntu stjórnvöld uppfærða aðgerðaráætlun Íslands í loftslagsmálum. Í henni eru settar fram 48 aðgerðir sem íslenskt samfélag þarf að ráðast í til að Ísland nái markmiðum sínum um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 40% árið 2030, miðað við árið 2005.

Aðkoma Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar að aðgerðaráætluninni tengist aðgerð C.3, sem varðar loftslagsáhrif byggingariðnaðarins. Verkefnið gengur út á að gera áætlun um samdrátt í losun frá byggingariðnaði og hvernig megi stuðla að minni umhverfisáhrifum frá geiranum. HMS mun stýra samstarfsverkefninu en það byggist á breiðum grundvelli fyrirtækja úr allri virðiskeðju byggingariðnaðarins, ásamt félagsmálaráðuneyti sem hefur umsjón með mannvirkja­málum á Íslandi og umhverfis- og auðlindaráðuneyti sem ber ábyrgð á loftslagsmálum. Samráð verður auk þess haft við önnur ráðuneyti og opinberar stofnanir eftir atvikum. Gert er ráð fyrir að tillögum að áætlun verði skilað til ráðuneytanna fyrir 1. nóvember 2020.

Umhverfisáhrif mannvirkjagerðar er alþjóðlegt vandamál en samkvæmt upplýsingum frá Grænni byggð hafa umhverfisáhrif byggingariðnaðarins í Evrópu verið metin eftirfarandi:

  • Um 36% af heildarlosun koltvísýrings.
  • Um 30-50% af efnisnotkun.
  • Um 35-40% af úrgangi.
  • Um 40% af orkunotkun.

Stærsti hluti losunar gróðurhúsalofttegunda frá byggingariðnaði á Íslandi virðist eiga sér stað á byggingartíma og tengist efnisvali, innflutningi á byggingarefnum og notkun véla og tækja, meðal annars vegna flutninga á jarðefni. Aðeins lítill hluti losunarinnar, þ.e.a.s. notkun véla og tækja, fellur undir beinar skuldbindingar Íslands. Mikilvægt er hins vegar að draga úr losun sama hvar hún er bókfærð.

Margt er hægt að gera til að draga úr umhverfisáhrifum byggingariðnaðarins svo sem velja byggingarefni sem teljast umhverfisvænni, byggja mannvirki sem standast kröfur um umhverfisvottun, fara í endurbætur í stað þess að byggja nýtt, bæta orkunýtingu við rekstur mannvirkja og auka flokkun og endurvinnslu byggingar- og niðurrifsúrgangs, svo dæmi séu tekin.

Aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum má nálgast á eftirfarandi hlekk: https://www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/Adgerdaaetlun%20i%20loftslagsmalum%20onnur%20utgafa.pdf

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS