20. desember 2024

Hlutfall landsmanna með virka brunavarnaáætlun aldrei verið hærra 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Síðastliðinn nóvember samþykkti Mýrdalshreppur nýja brunavarnaáætlun sveitarfélagsins til næstu fimm ára. Brunavarnaáætlunin er nú aðgengileg á vefsíðu viðkomandi sveitarfélags en einnig er hún birt á vef HMS, hér. HMS óskar Slökkviliði Mýrdalshrepps og íbúum sveitarfélagsins til hamingju með þennan mikilvæga áfanga. 

Fyrr á árinu hafa brunavarnaáætlanir Slökkviliðs Akureyrar, Fjarðabyggðar og Skagafjarðar verið samþykktar af HMS og viðkomandi sveitarstjórn. Með þessum áætlunum hefur hlutfall landsmanna með virka brunavarnaáætlun aldrei verið hærra eða 90 prósent. Á sama tíma árið 2023 var hlutfall landsmanna með virka brunavarnaáætlun 84 prósent. 

Að hafa samþykkta brunavarnaáætlanir er mikilvægt hagsmunamál fyrir íbúa landsins, þar sem þær tryggja betra öryggi íbúa landsins. 

Stafrænar brunavarnaáætlanir eru unnar á einfaldari hátt en áður og munu veita betri yfirsýn yfir stöðu slökkviliða á landsvísu með samræmdum og samanburðarhæfum upplýsingum. Upplýsingarnar sem nýttar eru í áætlanirnar eru unnar í gegnum Brunagátt, sem er miðlæg gátt er HMS rekur fyrir rauntímaupplýsingar um stöðu slökkviliða og eru gögnin nýtt til forskráningar í áætlanirnar. Upplýsingum er viðhaldið í gáttinni og eru þær uppfærðar í samræmi við breytingar.  

Brunavarnaáætlanir eru öflugt tæki til að skapa heildstæða yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðs og hversu vel í stakk búið það er að takast á við hættur á sínu svæði í þeim tilgangi að vernda líf og eignir manna.  

Markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkvilið sé nægilega mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað til að ráða við þær hættur sem steðja að í sveitarfélaginu. Á hverju starfssvæði slökkviliðs skal liggja fyrir brunavarnaáætlun sem fengið hefur samþykki HMS og viðkomandi sveitarstjórnar. Slökkviliðsstjóri vinnur brunavarnaáætlun sem er öflugt verkfæri til að ná fram yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðs og hversu vel í stakk búið það er að takast á við hættur á sínu svæði. Brunavarnaáætlanir eru aðgengilegar á vefsíðu viðkomandi sveitarfélags en einnig eru þær birtar á vef HMS, hér. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS