29. maí 2026

Úthlutun hlutdeildarlána í maí

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum í maí var nær þreföld á við það fjármagn sem var til úthlutunar
  • Alls uppfylltu 63 umsóknir öll skilyrði til úthlutunar, en 33 umsóknir voru dregnar út og fengu úthlutað hlutdeildarláni
  • Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem draga þarf úr hópi umsókna sem uppfylla öll skilyrði

HMS hefur lokið við úthlutun hlutdeildarlána í maí en alls voru 78 umsóknir til yfirferðar, þar af 36 umsóknir sem bárust í fyrri mánuðum ársins. Í langflestum umsóknum lá fyrir samþykkt kauptilboð í fasteign sem hefur verið samþykkt af HMS og uppfyllir skilyrði hlutdeildarlána. Slíkar umsóknir njóta forgangs umfram umsóknir þar sem kauptilboð liggur ekki fyrir.

Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og eru ætluð fyrstu kaupendum, sem og þeim sem ekki hafa átt fasteign síðustu fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Markmið lánanna er að aðstoða fyrstu kaupendur við að komast inn á húsnæðismarkaðinn með því að brúa bilið við fasteignakaup.

Líkt og í fyrri úthlutunum ársins voru 458 milljónir króna til úthlutunar, en sótt var um hlutdeildarlán fyrir um 1.300 milljónir króna. Eftirspurnin var því nær þreföld á við það fjármagn sem var í boði.

Eftir yfirferð umsókna uppfylltu 63 umsóknir öll skilyrði til úthlutunar, en heildarfjárhæð þeirra nam um 985 milljónum króna. Þar sem umsótt fjárhæð var umfram það fjármagn sem var til úthlutunar þurfti að velja af handahófi úr hópi umsókna sem uppfylltu öll skilyrði. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem slíku fyrirkomulagi er beitt.

Alls voru 33 umsóknir dregnar út af fulltrúa Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við forgangsreglur úthlutunar. Heildarfjárhæð úthlutaðra lána nam um 530 milljónum króna.

Samtals hlutu 30 umsóknir ekki úthlutun í maí þrátt fyrir að uppfylla öll skilyrði. Öllum þeim umsækjendum hefur verið boðið að halda umsókn sinni opinni og færa hana yfir í úthlutun í júní.

Í töflunni hér að neðan má sjá fjölda og fjárhæðir veittra hlutdeildarlána eftir landshlutum í maí.

Næsta úthlutun opnar 2. júní

Umsóknartímabilið fyrir næstu úthlutun hlutdeildarlána stendur frá kl. 12:00 þriðjudaginn 2. júní og til kl. 12:00 mánudaginn 15. júní næstkomandi. Til úthlutunar eru að lágmarki 458 milljónir króna.

Nánari upplýsingar um hlutdeildarlán og umsóknarferlið má finna á Ísland.is.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS