6. júlí 2026
6. júlí 2026
Hlutdeildarlán á öðrum ársfjórðungi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum var umfram það fjármagn sem var til úthlutunar í öllum úthlutunum annars ársfjórðungs
- Veitt voru 99 lánsvilyrði fyrir um einn og hálfan milljarð króna
- HMS hefur það sem af er árinu samþykkt yfir 700 nýjar íbúðir sem uppfylla skilyrði til að vera keyptar með hlutdeildarláni
Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum var áfram mikil á öðrum ársfjórðungi og var umfram það fjármagn sem var til úthlutunar. Í hverri úthlutun á tímabilinu þurfti því að draga umsóknir út af handahófi úr hópi umsókna sem uppfylltu öll skilyrði, í samræmi við forgangsreglur úthlutunar.
Þróunin endurspeglar mikilvægi hlutdeildarlána sem úrræðis fyrir tekjulægri fyrstu kaupendur á húsnæðismarkaði. Alls voru 229 umsóknir til yfirferðar á öðrum ársfjórðungi og reyndust 164 þeirra uppfylla öll skilyrði. Á tímabilinu voru 99 umsóknir samþykktar og nam heildarfjárhæð veittra lánsvilyrða um einum og hálfum milljarði króna.
Flest lánsvilyrði veitt til kaupa á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu
Flest lánsvilyrði á öðrum ársfjórðungi voru veitt vegna íbúðarkaupa á höfuðborgarsvæðinu, eða 61 af 99 veittum vilyrðum. Heildarfjárhæð lánsvilyrða á höfuðborgarsvæðinu nam tæplega 986 milljónum króna, eða um tveimur þriðju af heildarfjárhæð veittra lánsvilyrða.
Utan höfuðborgarsvæðisins voru veitt 38 lánsvilyrði fyrir um 494 milljónir króna. Flest þeirra voru á Suðurlandi, þar sem 14 lánsvilyrði voru veitt, og á Suðurnesjum, þar sem 12 lánsvilyrði voru veitt. Þá voru sjö lánsvilyrði veitt vegna íbúðarkaupa á Vesturlandi, þrjú á Norðurlandi eystra, eitt á Austurlandi og eitt á Norðurlandi vestra.
Í töflunni hér að neðan má sjá fjölda og fjárhæð veittra hlutdeildarlána eftir landshlutum á öðrum ársfjórðungi.
Rúmlega 700 nýjar íbúðir hafa verið samþykktar á árinu
Hlutdeildarlán eru einungis veitt til kaupa á nýjum íbúðum sem hafa verið samþykktar af HMS. Það sem af er ári hafa 706 íbúðir víða um land verið samþykktar af HMS , en til samanburðar þá voru 476 íbúðir samþykktar allt árið í fyrra.
Í upphafi árs voru hámarksverð íbúða sem falla undir hlutdeildarlán hækkuð og verðflokkum fjölgað úr þremur í fjóra. Breytingarnar höfðu það að markmiði að fjölga íbúðum í úrræðinu á landinu öllu.
Heildarfjöldi samþykktra íbúða á árinu eftir landshlutum má sjá hér að neðan:
Opið fyrir umsóknir í júlí
Umsóknarfrestur er til 13. júlí og til úthlutunar verða að lágmarki 458 milljónir króna.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





