16. maí 2023

Hleðsla rafbíla á ferðalögum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Þegar ferðast er um landið á rafbíl er ekki endilega auðvelt að komast að hleðslustöð þegar best hentar. Þá getur verið freistandi að nota neyðarhleðslutækið og stinga í samband í næsta tengil, t.d. á tjaldsvæði, gististað eða í sumarbústað. Aldrei ætti að nota tengla til hleðslu rafbíla nema þeir séu séstaklega ætlaðir til slíks, sé svo ekki getur skapast slysa- og brunahætta.

Hver einstakur tengipunktur til hleðslu rafbíla skal varinn með yfirstraumsvarnarbúnaði og bilunarstraumsrofa (lekastraumsrofa) af réttri gerð, sem eingöngu verja þennan tiltekna tengipunkt.

Í flestum tilfellum henta hefðbundnir heimilistenglar ekki til hleðslu rafbíla, nema þeir séu varðir eins og að framan er greint og tryggt sé að straumur fari ekki yfir 8 til 10A.

HMS bendir á leiðbeiningar sem stofnunin hefur gert varðandi hleðslu rafbíla og hleðsluaðferðir og frekari upplýsingar um rafmagnsöryggi og rafbíla.

Mikilvægt er að rekstraraðilar sem bjóða gistingu upplýsi viðskiptavini sína um hvort viðeigandi búnaður til hleðslu rafbíla sé til staðar og hvernig standa skuli að hleðslu.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS