20. desember 2024
13. maí 2022
Hjálmanotkun barna
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Þegar keyptur er nýr hjálmur er mikilvægt að athuga hvort að hann passi. Hjálmarnir fást í ýmsum stærðum enda höfuðlag barna misjafnt eins og skóstærðir þeirra. Ekki kaupa stóran hjálm með það í huga að hann passi næstu árin.
Flestum börnum finnst eitt það skemmtilegasta sem þau gera er að vera úti að hjóla. Hjólið er tekið fram um leið og vorar og hjólað af krafti langt fram á haust. En því miður fylgir þessum ánægjustundum barnanna oft slys og helsta ástæðan er að þau detta af hjólinu. Áverkarnir eru margvíslegir en mjög oft fær barnið högg á höfuðið við fallið. Þar er það hjálmurinn sem getur komið í veg fyrir að slys verði alvarleg. Hægt er að nefna ótal dæmi þar sem börn hafi sloppið með minni meiðsli í stað þess að slasast alvarlega þökk sé hjálminum. Þess vegna voru sett lög sem skylda börn undir 16 ára til að vera með hlífðarhjálm við hjólreiðar.
Þegar keyptur er nýr hjálmur er mikilvægt að athuga hvort að hann passi. Hjálmarnir fást í ýmsum stærðum enda höfuðlag barna misjafnt eins og skóstærðir þeirra. Ekki kaupa stóran hjálm með það í huga að hann passi næstu árin.
Til að hjálmurinn hlífi barninu sem best þarf hann að passa og vera rétt stilltur. Mikilvægt er fara eftir leiðbeiningunum sem fylgja hjálminum, þar kemur fram hvernig á að meðhöndla hjálminn og passa að hann sé rétt stilltur. Það á sem dæmi að setja hjálminn beint niður á höfuðið. Þegar hjálmurinn er festur þá á bandið sem fer undir hökuna að falla það þétt að henni það eiga einungis 1-2 fingur komist á milli bands og höku. Prófaðu hjálminn með því að færa hann fram og aftur á höfði barnsins. Ef hann færist aðeins um nokkra millimetra þá situr hann rétt. Hjálmurinn ætti að sitja þægilega á höfðinu og hindra barnið sem minnst á með leik stendur.
Það eru til hjálmar sem eru sérstaklega gerðir fyrir börn 7 ára og yngri en þeir auðþekkjanlegir með grænni spennu. Munurinn á þessari tegund hjálma og annarra hjólreiðahjálma er að yngstu börnin allt að sjö ára eru ekki alltaf að taka af sér hjálminn þegar þau sjá spennandi klifurgrind. Græna sylgjan er öryggisbúnaður sem opnast sjálfkrafa þegar 9-16 kg þrýstingi, til dæmis ef barnið lendir í að hanga á ól sem festir hjálminn. Búnaður lágmarkar þannig hættuna á að barnið festist út af hjálminum.
Ráð fyrir neytendur
- Skoðaðu viðvaranir, merkingar og leiðbeiningar. Kaupið aðeins búnað sem er CE-merktur og lesið sérstaklega viðvaranir og merkingar.
- Notaðu alltaf búnaðinn eins og leiðbeiningar framleiðanda segja til um. Hjálmurinn veitir ekki fulla vernd geng slysum en dregur úr líkum á meiðslum og alvarleika hvers kyns áverka.
- Athugaðu hjálminn reglulega, ef hann hefur orðið fyrir hnjaski getur hann verið ónýtur og þá þarf endurnýjaðu hann.
- Notið ekki hjálm sem er útrunnin en hjálmar hafa tiltekin endingartíma en algengt er að hann sé um fimm ár. Það sést inn í hjálminum hvenær hann var framleiddur
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS