3. janúar 2022

Heildarúthlutun ársins nam 2,7 milljörðum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Lokaúthlutun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) á stofnframlögum til byggingar og kaupa á hagkvæmum íbúðum var kynnt á síðasta degi ársins. Mun hún renna til kaupa á 82 hagkvæmum íbúðum sem verða leigðar út til almennings á hagstæðum kjörum en leigutakar þessara íbúða munu þurfa að uppfylla skilyrði um að vera undir útgefnum tekju- og eignamörkum. Á þessu ári hafa verið keyptar eða hafin bygging á alls 364 íbúðum með stofnframlögum sem numið hafa 2,7 milljörðum króna og nemur heildarfjárfestingin 12,8 milljörðum á árinu 2021 þegar allt er talið.

Lokaúthlutun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) á stofnframlögum til byggingar og kaupa á hagkvæmum íbúðum var kynnt á síðasta degi ársins. Mun hún renna til kaupa á 82 hagkvæmum íbúðum sem verða leigðar út til almennings á hagstæðum kjörum en leigutakar þessara íbúða munu þurfa að uppfylla skilyrði um að vera undir útgefnum tekju- og eignamörkum. Á þessu ári hafa verið keyptar eða hafin bygging á alls 364 íbúðum með stofnframlögum sem numið hafa 2,7 milljörðum króna og nemur heildarfjárfestingin 12,8 milljörðum á árinu 2021 þegar allt er talið.

Íbúðirnar eru reistar og reknar af ýmsum aðilum, meðal annars íbúðafélagi verkalýðshreyfingarinnar Bjargi og Brynju – Hússjóði ÖBÍ. Framlögunum, sem HMS hefur umsjón með að veita, var komið á í tengslum við kjarasamninga fyrir nokkrum árum og er ætlað að styðja við framboð hagkvæmra leiguíbúða fyrir tekjulága á Íslandi og lækka verulega húsnæðiskostnað.

 

1.008 hagkvæmar leiguíbúðir þegar verið teknar í notkun, tæplega 2.000 til viðbótar í bygginguHMS hefur úthlutað stofnframlögum sem þessum, tvisvar á ári frá árinu 2016. Alls hefur 18 milljörðum króna verið útdeilt í bein stofnframlög vegna byggingar eða kaupa á 2.981 íbúð á þessum fimm árum og eru hluti af nýju húsnæðiskerfi fyrir tekjulægri hópa. Um tvö þúsund íbúðir af þeim sem hafa fengið fjárframlögin eru enn í byggingu eða á teikniborðinu en búið er að taka rúmlega eitt þúsund íbúðir í notkun*. Það þýðir að um eitt þúsund fjölskyldur og einstaklingar, undir ákveðnum tekju- og eignamörkum, hafa flutt inn í leiguíbúðir þar sem ekki er hægt að vísa þeim út (nema að ströngum skilyrðum uppfylltum) og þar sem leigan er alla jafna um um 20% undir markaðsleigu á almennum markaði (skv. útreikningum Bjargs íbúðafélags). Heildarfjárfestingin í þessu nýja opinbera húsnæðiskerfi um allt land síðustu fimm árin nemur nú tæplega 93 milljörðum króna, þegar framlög sveitarfélaga og lánsfjármögnun lánastofnana hafa verið talin með.

Hermann Jónasson, forstjóri HMS: „Það er mikilvægt að staldra við á þessum tímamótum og átta okkur á hversu mikil breyting hefur orðið í húsnæðismálum þess hóps sem tilheyrir tveimur lægstu tekjufimmtungunum hér á landi. Við erum að tala um 93 milljarða fjárfestingu í húsnæðiskerfi sem var ekki til á Íslandi áður, en er vel þekkt í Danmörku og Þýskalandi. Þetta er orðið áþreifanlegra nú þegar fólk er flutt inn í þriðjunginn af þessum íbúðum, eða alls 1.008 íbúðir nú um áramótin, en tveir þriðju íbúðanna eru komnar mislangt í byggingu. Þegar íbúðirnar verða allar komnar í notkun þá erum við að tala um hátt í tíu þúsund Íslendinga, sem áttu ekki rétt á félagslegu leiguhúsnæði og voru að verja um og yfir helmingi ráðstöfunartekna sinna í leigu, sem búa nú við allt annað og betra húsnæðisöryggi. Leigumarkaðurinn, eins og hann var, þjónaði mjög illa þörfum þessa fólks enda óöryggið mikið og hækkanir á leigu tíðar. Húsnæðisfélög sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni og sem njóta meðgjafar ríkis og sveitarfélaga í formi stofnframlaga eru mun hentugri leigusali fyrir þennan hóp. Viðkvæmir hópar á húsnæðismarkaði eins og fólk af erlendum uppruna, einstæðir foreldrar, svo ekki sé talað um öryrkja, eru á meðal þeirra sem hafa nýtt sér að leigja þessar nýju hagkvæmu íbúðir og tryggja sér þannig búsetu í skólahverfum barna sinna og bætta framfærslu sem leiðir af lægri leigugreiðslum, svo dæmi sé tekið. Þetta skiptir verulegu máli.“

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS