13. maí 2025
1. febrúar 2022
H&M innkallar hárspennu með LED ljósi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur borist tilkynning í gegn um Safety Gate tilkynningakerfi EES-ríkjanna um innköllun á hættulegum barnahárspennum með LED ljósi. Um er að ræða hárspennur með LED ljósi og hárlokk sem seldar voru í barnadeild H&M frá 23. júlí til 29. október 2021.

Ástæða innköllunarinnar er að hólfið fyrir batteríin í hárklemmunni getur brotnað og verða við það aðgengileg börnum. Þó svo að ekki fari mikið fyrir smábatteríum eða hnapparafhlöðum getur hættan af þeim verið mikil. Ef að barn gleypir slíkt batterí getur það valdið alvarlegum bruna innvortis á innan við tveimur klukkustundum. Leita þarf læknisaðstoðar samstundis ef grunur vaknar um slík tilvik.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur alla þá sem keypt hafa þessar hárspennur að taka þær úr umferð og skila til næstu H&M verslunar.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS