29. janúar 2024

Hamranes og Urriðaholt með flestar nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Íbúðahverfin Hamranes í Hafnarfirði og Urriðaholt í Garðabæ hafa að geyma þær götur sem innihalda flestar nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu, en utan höfuðborgarsvæðisins eru flestar nýbyggingar í Árborg. Þetta kemur fram í upplýsingum sem HMS hefur unnið úr fasteignaskrá.

Samkvæmt fasteignaskrá eru 10.910 íbúðir með byggingarár 2021 eða síðar og er 6.331 þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Á höfuðborgarsvæðinu eru flestar þeirra í póstnúmeri 221 í Hafnarfirði og vegur uppbygging í Hamranesinu þar þyngst, en 341 íbúð hefur komið inn á markað úr götunni Áshamar og þar að auki eru tvær aðrar götur í hverfinu með um 150 nýjar íbúðir hvor. Þar á eftir kemur póstnúmer 210 í Garðabæ, en um 250 íbúðir má finna í Maríugötu í Urriðaholti og tæplega 200 í Eskiás. Í Kópavogi nánar tiltekið í póstnúmeri 201 má finna um 400 nýjar íbúðir í Sunnu- og Silfursmára.

Í Reykjavík eru flestar íbúðirnar í Vogahverfi og flestar í Kuggavogi og Dugguvogi. Yfir 100 íbúðir eru í Hallgerðargötu sem og í Austurhlíð í póstnúmeri 105. Í póstnúmer 110 í Árbæ má finna yfir 100 íbúðir á Elliðabraut og uppi á Bæjarhálsi. Í Grafarholti eru fjórar götur með fleiri en 50 nýbúðir, flestar á Skyggnisbraut.

Ef horft er til uppbyggingar utan höfuðborgarsvæðis eru 4.579 íbúðir með byggingarár 2021 eða síðar á landsbyggðinni. Í fyrra og um leið þriðja árið í röð var um fjórðungur allra nýrra íbúða byggður í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og eru flestar þeirra Sveitarfélaginu Árborg eða tæplega 900 talsins. Samtals eru um 240 þeirra á Austurhólum og Eyrarvegi en fimm götur í Sveitarfélaginu Árborg eru með fleiri en 50 íbúðir. Um 650 eru í Reykjanesbæ og flestar þeirra eða um 150 á Dalsbraut. Rúmlega 450 nýjar íbúðir má finna á Akranesi og tæpur helmingur þeirra er í Asparskógum. Um 470 á Akureyri sem dreifast víða milli gatna en 110 þeirra má finna í Kjarnagötu.

Vestmannaeyjabær, Rangárþing ytra og Bláskógabyggð eru einu sveitarfélögin á Suðurlandi sem eru í meira en klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík og með yfir 30 nýjar íbúðir. Á Vesturlandi hafa risið 44 nýjar íbúðir í Borgarbyggð á tímabilinu. Sama á við um Múlaþing á Austurlandi en 42 nýjar íbúðir eru í sveitarfélaginu. Á Norðurlandi að Akureyrarbæ frátöldum eru fleiri en 30 nýjar íbúðir bæði í Eyjafjarðarsveit og Hörgársveit.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS