1. mars 2024

Greiðslur húsnæðisbóta og sértæks húsnæðisstuðnings í febrúar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS greiddi tæplega 920 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda 1. mars 2024 vegna leigu í febrúar, en þar af voru rúmlega 169 milljónir greiddar til stuðnings fyrir Grindvíkinga. Um þrjár tegundir af stuðningi er að ræða, sértækan stuðning fyrir Grindvíkinga, húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir Kópavog og Skagafjörð.

 

Sér­­tæk­­ur hús­næð­is­­stuðn­­ing­­ur vegna nátt­úru­ham­fara í Grinda­vík­­­ur­bæ

Framkvæmd sértæks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga hefur verið á ábyrgð HMS frá því að úrræðið tók gildi í desember á síðasta ári. Stuðningnum er ætlað að styðja við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara sem hafa leitt til þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. HMS greiðir stuðninginn til þeirra íbúa sem hafa neyðst til að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkur og er greiddur mánaðarlega. Alls voru 757 virkar umsóknir sem fengu greiðslu vegna febrúarmánaðar, og nam greiðslan rúmlega 169 milljónum króna.

 

Hús­næð­is­bæt­­ur

Húsnæðisbótum er ætlað að styðja tekju- og eignalága leigjendur vegna leigu íbúðarhúsnæðis og eru þær greiddar mánaðarlega. Greiðslur húsnæðisbóta í febrúar námu um 721 milljónir króna til 16.827 umsækjenda vegna leigu í febrúarmánuði.

 

Sér­­stak­­ur hús­næð­is­­stuðn­­ing­­ur

Greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog er framkvæmd af HMS sem hluti tilraunaverkefnis stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru alls 29 milljónir króna til 1.036 umsækjenda í Kópavogi og 97 umsækjenda í Skagafirði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS