22. janúar 2019

Greining á íbúðaþörf 2019-2040

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Hagdeild Íbúðalánasjóðs hefur gefið út skýrsluna Íbúðaþörf 2019-2040. Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:

Hagdeild Íbúðalánasjóðs hefur gefið út skýrsluna Íbúðaþörf 2019-2040. Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:

  • Á undanförnum árum hefur þörf fyrir íbúðir vaxið meira en sem nemur fjölgun íbúða hér á landi. Talið erað framboð íbúða hafi verið í samræmi við þörf um áramótin 2015–2016 en að síðan þá hafi íbúðum fjölgaðminna en sem nemur þörf. Áætlað er að um áramótin 2018–2019 hafi vantað 5.000–8.000 íbúðir til að rúmajafnvægisfjölda heimila miðað við undirliggjandi heimilasamsetningu. Miðað við tilteknar forsendur er útlitfyrir að þessi óuppfyllta íbúðaþörf minnki á næstu árum.
  • Þörf fyrir íbúðir hefur vaxið hratt á undanförnum árum vegna mikillar fólksfjölgunar, breyttraraldurssamsetningar og annarrar lýðfræðilegrar þróunar. Fólksfjölgun hefur verið yfir sögulegu meðaltaliundanfarin ár og aldrei mælst jafn mikil og árið 2017. Fjölgun íbúða í umfangsmikilli skammtímaleigu hefuraukið enn íbúðaþörf á undanförnum árum.
  • Hagstofa Íslands spáir sveiflu í mannfjöldaþróun á næstu árum, einkum vegna búferlaflutninga. Á næstu fimmárum er því spáð að fjölgun innflytjenda verði áfram mikil en sú fjölgun gangi að nokkru leyti til baka eftir 5–10ár og að mannfjöldi staðni því um skeið. Það er álitaefni hvernig taka á tillit til þessa við mat á íbúðaþörf.• Samkvæmt miðspá mannfjöldaspár Hagstofunnar mun landsmönnum fjölga um alls 13% á næstu 20 árum semer talsvert minni fólksfjölgun en verið hefur undanfarin 20 ár. Fjölgun íbúða þarf hins vegar að vera hlutfallslegameiri en fólksfjölgun vegna annarrar lýðfræðilegrar þróunar og óuppfylltrar íbúðaþarfar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS