27. mars 2024

Greiðslur húsnæðisbóta og sértæks húsnæðisstuðnings í mars

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS greiddi um 952 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda 27. mars 2024. Tæplega 924 milljónir króna voru vegna leigu í mars, en þar af voru rúmlega 190 milljónir greiddar til stuðnings fyrir Grindvíkinga. Um þrjár tegundir af stuðningi er að ræða, sértækan stuðning fyrir Grindvíkinga, húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir Kópavog og Skagafjörð.

 

Sér­­tæk­­ur hús­næð­is­­stuðn­­ing­­ur vegna nátt­úru­ham­fara í Grinda­vík­­­ur­bæ

Framkvæmd sértæks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga hefur verið á ábyrgð HMS frá því að úrræðið tók gildi í desember á síðasta ári. Stuðningnum er ætlað að styðja við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara sem hafa leitt til þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. HMS greiðir stuðninginn til þeirra íbúa sem hafa neyðst til að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkur og er greiddur mánaðarlega. Alls voru rúmlega 203 milljónir króna greiddar til 839 umsækjenda og þar af voru tæpar 190 milljónir króna vegna marsmánaðar.

 

Hús­næð­is­bæt­­ur

Húsnæðisbótum er ætlað að styðja tekju- og eignalága leigjendur vegna leigu íbúðarhúsnæðis og eru þær greiddar mánaðarlega. Heildargreiðsla húsnæðisbóta nam um 720 milljónum króna til 16.950 umsækjenda og þar af voru 705 milljónir króna vegna leigu í marsmánuði.

 

Sér­­stak­­ur hús­næð­is­­stuðn­­ing­­ur

Greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog er framkvæmd af HMS sem hluti tilraunaverkefnis stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru alls 29 milljónir króna til 1.036 umsækjenda í Kópavogi og 93 umsækjenda í Skagafirði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS