20. desember 2024
2. október 2024
Greiðsla húsnæðisbóta í september 2024
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS greiddi rúmar 1.036 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda þann 1. október 2024. Um 1.012 milljónir króna voru vegna leigu í september, en þar af voru um 126 milljónir greiddar til stuðnings fyrir Grindvíkinga. Um þrjár tegundir af stuðningi er að ræða, sértækan stuðning fyrir Grindvíkinga, húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir Kópavog og Skagafjörð.
Sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ
HMS ber ábyrgð á greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga frá því að úrræðið tók gildi í desember á síðasta ári. Stuðningnum er ætlað að styðja við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara sem hafa leitt til þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. HMS greiðir stuðninginn til þeirra íbúa sem hafa neyðst til að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkur og er greiddur mánaðarlega. Alls voru rúmar 126 milljónir króna greiddar til um 580 heimila. Um 123 milljónir voru greiddar vegna leigu í september.
Almennar húsnæðisbætur
Húsnæðisbótum er ætlað að styðja tekju- og eignalægri einstaklinga vegna leigu á íbúðarhúsnæði og eru þær greiddar mánaðarlega. Heildargreiðsla húsnæðisbóta nam um 886 milljónum króna til um 16.300 umsækjenda en þar af voru um 866 milljónir króna vegna leigu í septembermánuði.
Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir Kópavog og Skagafjörð
HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluti af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru alls um 23 milljónir króna til um 940 umsækjenda í Kópavogi og 77 umsækjenda í Skagafirði.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS