4. júní 2024

Greiðsla húsnæðisbóta í maí 2024

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS greiddi rúmar 943 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda 31. maí 2024. Tæplega 925 milljónir króna voru vegna leigu í maí, en þar af voru rúmlega 196 milljónir greiddar til stuðnings fyrir Grindvíkinga vegna leigu í maí. Um þrjár tegundir af stuðningi er að ræða, sértækan stuðning fyrir Grindvíkinga, húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir Kópavog og Skagafjörð.

Sér­tæk­ur hús­næð­is­stuðn­ing­ur vegna nátt­úru­ham­fara í Grinda­vík­ur­bæ

Framkvæmd sértæks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga hefur verið á ábyrgð HMS frá því að úrræðið tók gildi í desember á síðasta ári. Stuðningnum er ætlað að styðja við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara sem hafa leitt til þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. HMS greiðir stuðninginn til þeirra íbúa sem hafa neyðst til að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkur og er greiddur mánaðarlega. Alls voru um 204 milljónir króna greiddar til 860 umsækjenda og þar af voru rúmar 196 milljónir króna vegna maímánaðar.

Al­menn­ar hús­næð­is­bæt­ur

Húsnæðisbótum er ætlað að styðja tekju- og eignalága leigjendur vegna leigu íbúðarhúsnæðis og eru þær greiddar mánaðarlega. Heildargreiðsla húsnæðisbóta nam um 708 milljónum króna til 16.635 umsækjenda og þar af voru 697,5 milljónir króna vegna leigu í maímánuði.

Sér­stak­ur hús­næð­is­stuðn­ing­ur fyr­ir Kópa­vog og Skaga­fjörð

Greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog er framkvæmd af HMS sem hluti tilraunaverkefnis stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru alls 30 milljónir króna til 1.068 umsækjenda í Kópavogi og 87 umsækjenda í Skagafirði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS