7. ágúst 2026
10. ágúst 2026
Greiðsla húsnæðisbóta í júlí
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS greiddi alls 915 milljónir í stuðning til leigjenda vegna leigu í júlí
- Yfir 17 þúsund heimili á leigumarkaði fengu húsnæðisbætur í mánuðinum
- Rúmlega þúsund heimili í Skagafirði og Kópavogi fengu sérstakan húsnæðisstuðning
Þann 31. júlí síðastliðinn greiddi HMS um 915 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í júlí. Greiðslurnar styðja við þúsundir heimila um land allt og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði tekju- og efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra.
Almennar húsnæðisbætur
Húsnæðisstuðningurinn skiptist í tvo meginflokka, annars vegar almennar húsnæðisbætur og hins vegar sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga.
Stærsti hluti greiðslna í júlí var vegna almennra húsnæðisbóta. HMS greiddi tæpar 881 milljón króna til um 17.501 heimilis í almennar húsnæðisbætur. Þetta samsvarar um þriðjungi af áætlaðri stærð leigumarkaðarins, en HMS áætlar að hann telji um 50 þúsund heimili.
Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir Kópavog og Skagafjörð
Auk þess greiddi HMS sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Í júlí voru greiddar tæpar 34 milljónir króna til 1.088 heimila í Kópavogi og 84 heimila í Skagafirði. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á vegum sveitarfélaganna og er honum ætlað að styðja við þá sem eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði vegna fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




