4. febrúar 2026
4. febrúar 2026
Greiðsla húsnæðisbóta í janúar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS greiddi þann 30. janúar sl. um 950 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í janúar. Þessar greiðslur styðja við þúsundir heimila um land allt og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra.
Húsnæðisstuðningurinn skiptist í tvo meginflokka. Það eru, almennar húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur sveitarfélaga.
Almennar húsnæðisbætur
Stærsti hluti stuðningsins eru húsnæðisbætur, sem er ætlað að lækka húsnæðiskostnað tekju- og efnaminni leigjenda. HMS greiddi tæpar 920 milljónir króna til um 18.100 umsækjenda í almennar húsnæðisbætur vegna leigu í janúar.
Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir Kópavog og Skagafjörð
HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á vegum sveitarfélaganna og er ætlað að styðja við þá sem eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði vegna fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna. Í janúar voru greiddar tæpar 30 milljónir króna til 1.025 umsækjenda í Kópavogi og 85 umsækjenda í Skagafirði vegna leigu í janúar.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




