4. mars 2026

Greiðsla húsnæðisbóta í febrúar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • 968 milljónir króna voru greiddar í húsnæðisstuðning vegna leigu í febrúar til þúsunda heimila um land allt
  • 18.267 umsækjendur fengu greiddar almennar húsnæðisbætur
  • Tæpar 31 milljón króna í sérstakan húsnæðisstuðning greiddur til 1.142 umsækjenda í Kópavogi og Skagafirði

HMS greiddi þann 27. febrúar sl. um 968 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í febrúar. Þessar greiðslur styðja við þúsundir heimila um land allt og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra.

Húsnæðisstuðningurinn skiptist í tvo meginflokka. Það eru, almennar húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur sveitarfélaga.  

Al­menn­ar hús­næð­is­bæt­ur

Stærsti hluti stuðningsins eru húsnæðisbætur, sem er ætlað að lækka húsnæðiskostnað tekju- og efnaminni leigjenda. HMS greiddi tæpar 937 milljónir króna til um 18.267 umsækjenda í almennar húsnæðisbætur vegna leigu í febrúar.

Sér­stak­ur hús­næð­is­stuðn­ing­ur fyr­ir Kópa­vog og Skaga­fjörð

HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á vegum sveitarfélaganna og er ætlað að styðja við þá sem eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði vegna fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna. Greiddar voru tæpar 31 milljónir króna til 1.055 umsækjenda í Kópavogi og 87 umsækjenda í Skagafirði vegna leigu í febrúar.

Skipt­ing greiðslna mið­að við ald­urs­bil

Gerð var greining á greiðslu húsnæðisbóta eftir aldri og tegund húsnæðis, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Niðurstöðurnar endurspegla skiptingu þeirra sem fengu greiddar húsnæðisbætur á viðkomandi tímabili. Á báðum svæðum eru flestir umsækjendur að leigja á einkamarkaði og er sá hópur langfjölmennastur í öllum aldursflokkum.

Aldurshópurinn 30 til 39 ára er fjölmennastur meðal þeirra sem fengu greiddar húsnæðisbætur og næstfjölmennasti hópurinn er 40 til 49 ára. Þetta bendir til þess að húsnæðisbætur vegna leigu á einkamarkaði séu algengastar meðal fólks á miðjum aldri, sérstaklega á aldrinum 30 til 49 ára. Fæstir umsækjendur á leigumarkaði eru 70 ára og eldri.

Sé litið til heimavista eða námsgarða er sú húsnæðistegund einkum áberandi meðal yngsta aldurshópsins, frá 18 til 29 ára og fækkar bótaþegum í þeim flokki jafnt og þétt með hækkandi aldri. Það endurspeglar að húsnæðisbætur vegna slíks húsnæðis nýtast fyrst og fremst yngra fólki, svo sem námsmönnum.

Húsnæði í eigu ríkis eða sveitarfélaga vegur hlutfallslega meira hjá eldri aldurshópum en þeim yngri, sem bendir til þess að opinbert leiguhúsnæði og tengdur stuðningur hafi aukið vægi með hækkandi aldri.

Áfangaheimili og sambýli fatlaðra eru fámennir flokkar í heildarsamhenginu hvað varðar greiðslu húsnæðisbóta. Af greiningunni má sjá að framboð þessara húsnæðisúrræða er takmarkaðra á landsbyggðinni miðað við höfuðborgarsvæðið. Flest áfangaheimili virðast staðsett á höfuðborgarsvæðinu og endurspeglast það í hærri fjölda umsækjenda á því svæði. Sambýli fatlaðra eru einnig færri á landsbyggðinni samkvæmt ofangreindu, sem bendir til minni uppbyggingar slíkra úrræða utan höfuðborgarsvæðisins.

Í heild sýnir greiningin að greiðsla húsnæðisbóta dreifist fyrst og fremst til einstaklinga á miðjum aldri á einkamarkaði og að ákveðin húsnæðisúrræði eru aldurstengd og jafnframt misjafnlega aðgengileg eftir landsvæðum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS